Helgafell við Helgafellsöxl

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. febrúar 2024 kl. 18:34 eftir 11brekigeorg (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. febrúar 2024 kl. 18:34 eftir 11brekigeorg (spjall | framlög) (breytti texta)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Helgafell


Húsið Helgafell við jaðar Helgafells

Húsið Helgafell stendur utan byggðar við jaðar Helgafells. Það var reist árið 1936 af Magnúsi Guðmundssyni og Jórunni Hannesardóttur (Hannesar lóðs) frá Vesturhúsum og sonur hans Magnús, smiður, byggði það. Þar bjó Magnús Guðmundsson og kona í nokkur ár. Verkalýðsfélögin í Eyjum keyptu húsið og var þar um nokkurra ára skeið starfrækt barnaheimili á vegum þeirra. Barnaheimilið var starfrækt frá 12. júní 1946 til 1959 en þá var reksturinn færður niður á Ásaveg, í húsið Sóla. Húsið var síðar rifið og nýtt hús byggt á lóðinni.

Börn að leik á barnaheimilinu.

Upp úr 1960 keyptu ungir sjálfstæðismenn í Eyjum húsið og gerðu það upp sem félagsheimili. Húsið var í daglegu tali kallað „Betlehem”, að sögn vegna þess að félagsmenn voru síbetlandi hjá fyrirtækjum í bænum þegar lagfæringar á húsinu áttu sér stað. Önnur skýring á nafninu er mjög vegleg og áberandi ljósaskreyting sem komið var upp á húsinu um jól.

Íbúðarhúsið við Helgafell.

Helgafell hefur verið íbúðarhús Högna Sigurðssonar, fyrrverandi verkstjóra hjá bæjarveitunni, frá Vatnsdal hin síðari ár.

Sjá sögu Barnaheimilisins Helgafells í Bliki 1962, Barnaheimilið Helgafell.