Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Til vonarinnar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. maí 2019 kl. 22:12 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. maí 2019 kl. 22:12 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Til vonarinnar


Lífsins vaki, vonin milda,
vekur gleði og efnd á borði,
annars væri einskis virði
að ætla sér að gefa og njóta.
Hún er guðagjöfin besta,
göfgar, fegrar, eykur þrekið,
ræður dauðans rún og sorgar,
reisir hallir sólskinsbjartar.
Þorsteinn Jónsson (Laufási).