Sólveig Anspach

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 10:21 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 10:21 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Sólveig Anspach er fædd í Vestmannaeyjum þann 12. ágúst 1960. Móðir hennar er Högna Sigurðardóttir arkitekt og faðir hennar er bandarískur. Sólveig ólst upp í útlöndum og stundaði háskólanám í heimspeki og klínískri sálfræði í París. Sólveig hefur ekki búið á Íslandi en vinnur hér öðru hvoru. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt í júní 2006.