Ástgeir Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 15:42 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 15:42 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ástgeir Guðmundsson, Litlabæ, fæddist 27. október 1858 og lést 30. september 1943. Synir Ástgeirs hétu Valdimar, Kristinn, Ólafur og Magnús.

Ástgeir flutti alfarið til Vestmannaeyja 1880. Ástgeir var formaður á Sæborgu sem hann smíðaði sjálfur. Var hann með hana í tvær vertíðir en hætti þá formennsku. Sonur Ástgeirs, Magnús, var við formennsku á Sæborgu á eftir föður sínum. Eftir að Ástgeir hætti formennsku hóf hann bátasmíði. Mun hann hafa smíðað 10 mótorbáta í Eyjum og marga á Stokkseyri.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.