Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1988/Sindrandi silfur
Alltaf setur blessuð síldin svip sinn á samfélagið, þegar veiðar á henni hefjast á haustin. Fjöldi kvenna mætir þá til leiks og gefa þær sér vart tíma til að líta upp frá söltuninnni. Efri myndin sýnir síldarlöndun úr Valdimar Sveinssyni.
Neðri myndin er tekin í síldarsöltun og gefur Fríða Eiríksdóttir sér smá tíma til að líta upp, en þær Ester Ólafsdóttir og Helga Tómasdóttir eru of niðursokknar í sínu fagi.