Jakarnir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2006 kl. 16:01 eftir Witzit (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2006 kl. 16:01 eftir Witzit (spjall | framlög) (Haffi)
Fara í flakk Fara í leit

Jakarnir voru stofnaðir 2000/2001 af Sigurði Inga Einirssyni. Upphaflega voru þetta bara nokkrir strákar sem voru að leika sér saman í street-hockey (götuhokkí) á plani Íþróttamiðstöðvarinnar. Sjoppan Ísjakinn styrkti félagið svo að það gæti keypt búnað til að vera í og nota. Þaðan er nafnið þeirra dregið. Keypt voru tvö street-hockey (götuhokkí) mörk, sem þeir notuðu til að byrja með úti á planinu en síðan um veturinn voru þau færð inní gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar. Þar fengu strákarnir að vera á æfingum um veturinn.