Jón J. Bjarnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 12:18 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 12:18 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón J. Bjarnason fæddist 27. desember 1875 og lést 7. apríl 1964. Hann var kvæntur Laufeyju Guðjónsdóttur og áttu þau tvö börn, Sigurborgu og Högna.

Jón fæddist að Tannanesi í Önundarfirði og á Vestfjörðunum var hann lengst framan af. Jón kom til Vestmannaeyja árið 1934 og reri þá á Faxa. Hann gerði það gjarnan að sækja báta til útlanda og sigldi þeim heim. Síðasti báturinn sem hann sigldi heim var mb. Frigg. Hann lenti í óveðri á leiðinni og stóð hann við stýrið í þrjá sólarhringa samfleytt. Augnablik lagði hann sig en varð olíublautur vegna olíuleka. Ekki hafði hann skipt um föt og hlaut alvarleg brunasár. Náði hann þó bátnum í höfn og var því mjög feginn. Árið 1936 fékk hann starf hjá Guðmundi Gunnarssyni seglasaumara en tók síðan við því verkstæði og rak það til dauðadags.

Jón kenndi á öllum stýrimannanámskeiðum sem voru haldin í Vestmannaeyjum að því síðasta frátöldu.



Heimildir

  • Minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1964.