Einar Sveinn Jóhannesson
Einar Sveinn Jóhannesson fæddist 13. apríl árið 1914 og lést 26. september 1994. Einar var skipstjóri á Skaftfellingi, VE-33 á árunum 1951—1954. Hann var síðar með Vonarstjörnuna VE sem aðallega var í flutningum milli Þorlákshafnar og Eyja, mest mjólkurflutningum og var skipið stundum nefnt Mjólkurstjarnan. En lengst af var Einar skipstjóri á Lóðsinum og oft kenndur við það skip. Einar hafði einnig viðurnefnið "Skiptilykill".
Hann byggði húsið að Faxastíg 45 og bjó þar til æviloka.
Loftur Guðmundsson samdi Formannavísur og hljóðar vísan um Einar á þá leið:
- Einar að sækja unnarhót
- ekki er á Svanhólm tregur,
- glaður og reifur golu mót
- glottir,— og þorstinn dregur.
Brynjólfur Einarsson bátasmiður samdi einnig formannavísu um Einar, að beiðni hans, svohljóðandi:
- Einn sem hér af öðrum ber
- aflamaður mikill,
- oft á sjó í illu fer
- Einar Sveinn Jóhannesson (Skiptilykill).