Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Ný Þórunn Sveinsdóttir í smíðum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2018 kl. 13:44 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2018 kl. 13:44 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
HRAFN SÆVALDSSON SKRIFAR


Ný Þórunn Sveinsdóttir VE 401 í smíðum


Ós ehf. í Vestmannaeyjum, útgerð Þórunnar Sveinsdóttur VE 401, er að láta smíða fyrir sig glæsilegt nýtt togskip í Danmörku. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja ræddi við Sigurjón Óskarsson, útgerðarmann skipsins, um nýsmiðina.
Nýsmíðin er þriðja skipið sem útgerðin lætur byggja fyrir sig. En eigendur útgerðarinnar hófu rekstur hennar fyrir 38 árum, árið 1971. Þegar hinu nýja skipi verður skilað verða liðin nærri 40 ár frá því að útgerðin hófst. Skipið er 39,95 m. á lengd og 11,2 m. á breidd. Skipið getur því veitt upp að íjögurra mílna landhelgi Islands. Skipið er hannað af Karstensens Skibsværft A/S og Skipasýn ehf. í Reykjavík. Guðmundur Guðlaugsson verður skipstjóri, ásamt Viðari og Gylfa Sigurjónssonum á hinu nýja skipi. Markús Björgvinsson verður yf- irvélstjóri. Gert er ráð fyrir að 13 - 14 manns verði í áhöfn skipsins. Lest skipsins rúmar 410 kör, sem hvert er 460 lítrar. Áætlað er að skipið geti borið um 130 tonn af fiski. Skipið verður mjög vel útbúið. Það getur dregið tvö troll á sama tíma. Sex grandaravindur verða um borð og því er hægt að hafa þrjú troll undirslegin í einu. Skipið er það fyrsta í heiminum sem er búiö rafmagnstogvindum frá Rapp Hydema vindufram- leiðandanum, en allur vindubúnaður í skipið kemur frá þeim framleiðanda. MAK, MaK8M20, aðalvél verður í skipinu. Skipið er útbúið vaktfríu vél- arrúmi. Nýja skipið mun brenna svartolíu, en talið er að með því móti sé hægt að ná miklum sparnaði í rekstri. Búið er að kaupa allan búnað í skipið, utan siglingatækja, því verður lokið sumarið 2009. Upphaflega var það ætlun útgerðarinnar að kaupa notað skip, en síðar þróuðust mál þannig að farið var út í að kanna kosti þess að smíða nýtt skip. Veturinn 2007 hófst hönnunarvinna á nýju skipi, auk þess sem kostnaður var kannaður. Það leiddi til þess að í apríl sama ár var skrifað undir smíðasamning við Karstensen Skibsværft A/S í Skagen í Danmörku. Skipið er nýsmíði stöðvarinnar nr. 409. Nýsmíðin fer þó ekki öll fram í Danmörku. Smíði skrokks- ins fer fram hjá Odys skipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi. Þaðan verður skrokkurinn dreginn til Danmerkur, þar sem smíði skipsins verður lokið. Gert er ráð fyrir að skrokkurinn verði kominn til Skagen 20. ágúst 2009, þá munu Danirnir helja sína vinnu. Danska skipasmíðastöðin hefur yfirumsjón með allri smíði skipsins. Upphaflegar áætlanir sögðu til um að nýju skipi yröi skilað 20. september 2009, en þær áætlanir áttu eftir að breytast töluvert. Stærsti áhrifavaldur þess


SJOMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA voru þær þrengingar sem gengu yfir heimsbyggöina, haustið 2008, oft nefnt bankakreppa. Fjármögnunar- aðili nýsmíðinnar, Glitnir, var tckinn yfir at íslcnska ríkinu. Útgerðin stöðvaði í kjölíarið smíði skipsins ítvo mánuði vegna þeirrar óvissu sem ríkti á Islandi og hjá bankanum.

rekstri. Utgerðin tók tilboðinu, þar sem verðið þótti hagstætt, auk þess sem allri áhöfn skipsins var boðin vinna hjá Isfélaginu. Skipið fékk nafnið Suðurey VE 12 0 Os ehf. er sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Báðir synir Sigurjóns, Viðar og Gylfi, byrjuðu ungir að


t I desember sama ár, tveimur mánuðum seinna var 0 tilkynnt að Nýi Glitnir, síðar Islandsbanki, ætlaði að fjármagna nýsmíðina. Var þetta fyrsta stóra verk- efnið sem bankinn fjármagnaði eftir bankahrunið. Bankastjóri Nýja Glitnis lýsti í tilkynningu við það tækifæri, yfir miklu trausti til útgerðarinnar, enda farsæl útgerðarsaga að baki. Vinnu við smíði skips- ins var því hleypt af stað á nýjan leik og fljótlega var hafist handa við að skera stálið í skipið. Gert er ráð fyrir að skipið muni koma heim til heimahafnar í Vestmannaeyjum í febrúareða mars 2010. Fljótlega eftir að ákvörðun var tekin um nýsmtði, veturinn 2007, barst tilboö frá ísfélagi Vestmanna- eyja um að kaupa skip útgerðarinnar sem var í vinna hjá útgerðinni og starfa enn, auk þess vinnur Þóra Hrönn, dóttir Sigurjóns, fyrir útgerðina. Barna- börn Sigurjóns og Sigurlaugar konu hans eru nú farin að vinna hjá útgerðinni. Matthías Sveinsson, frændi Sigurjóns og fyrrverandi vélstjóri á Þórunni, hefur starfað að framgangi nýsmíðinnar. Hann hefur starf- að fyrir útgerðina og á öðrum bát í eigu íjölskyld- unnar, Leó VE 400, í tæp 50 ár, eða um líkt leyti og Sigurjón hóf sinn sjómannsferil. Sonur Matthíasar, Sveinn, starfar í dag sem vélstjóri hjá útgerðinni. Ægir Sigurðsson, matsveinn á Þórunni hefur starfað á Þórunni og Leó í rúm 40 ár. Fjölmargir sjómenn eiga langan starfsaldur hjá útgerðinni. Sigurjón seg- ir útgerðina hafa verið einstaklega heppna með skip og áhöfn alla sína tíð og fyrir það beri að þakka.