Pétur Andersen
Pétur Andersen, Sólbakka, fæddist 30. mars 1887 í Fredrikssundi í Danmörku. Pétur kom til Vestmannaeyja 1907 og varð fljótlega eftirsóttur vélamaður því hann hafði meiri kunnáttu í þeim geira en flestir í þá daga. Hann var vélamaður á Friðþjófi hjá Friðriki Svipmundssyni og svo á Lunda hjá Guðleifi Elíssyni á Brúnum.
Formennsku byrjaði Pétur árið 1912 á Lunda I og var með þann bát til 1920. Þá keypti hann Skógarfoss með fleiri mönnum og var formaður með bátinn til ársins 1926.
Pétur var aflakóngur árið 1924. Hann lést 6. apríl árið 1955.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.