Hellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2006 kl. 15:41 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2006 kl. 15:41 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hellir

Húsið Hellir stendur við Vestmannabraut 13b. Það var reist árið 1923 af Sigurði Gíslasyni, múrara.

Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurðardóttir búa í Helli ásamt þremur sonum þeirra. Þau byggðu við Helli árið 1990 í kjölfar fjölgunar í fjölskyldunni. Fékk húsið þá það skondna viðurnefni Hundraðmanna-Hellir, sem er jú tilvísun til Hundraðmannahellis.