Guðjón Jónsson (Heiði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 08:15 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 08:15 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Jónsson, Heiði, er fæddist 18. maí 1882 að Indriðakoti undir Eyjafjöllum. Árið 1898 fór Guðjón til Vestmannaeyja á fjallaskip með Friðriki Benónýsyni og var með honum nokkrar vertíðir. Ásamt honum keypti hann Portland og var þar háseti og formaður. Árið 1913 var Guðjón með Friðþjóf og síðar Gamm. Árið 1918 keypti Guðjón Kára Sölmundarson og var með hann til ársloka 1927. Þá tók Guðjón við Geir Goða þar sem hann varð aflakóngur árið 1928. Síðar var hann með ýmsa báta allt til 1946 og hafði þá verið formaður í 40 vertíðir.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.