Gunnar Ingimundarson
Gunnar Ingimundarson, Hellukoti, fæddist 31. júlí 1887 á Stokkseyri. Gunnar byrjaði formennsku árið 1924 á Enok og síðar á Soffí sem var nýr bátur í eigu Gísla J. Johnsen. Einnig var hann formaður á Sverri sem hann átti ásamt fleiri mönnum en hætti formennsku eftir það. Gunnar lést 23. júní 1964.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.