Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 08:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 08:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinbjörn Einarsson fæddist að Þorlaugargerði í Vestmannaeyjum 12. júní 1890. Foreldrar hans voru Einar Sveinsson og Guðríður Helgadóttir.

Sveinbjörn byrjaði ungur sjómennsku. Árið 1926 var hann formaður á Hebron í eina vertíð en hann starfaði aðallega sem vélamaður.

Sveinbjörn lærði trésmíði á yngri árum og eftir að hann hætti sjómennsku stundaði hann þá iðn.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.