Guðjón Þórðarson (Heklu)
Guðjón Þórðarson, Heklu, fæddist 16. september 1879 að Götu í Ásahreppi Rangárvallasýslu. Guðjón byrjaði ungur sjómennsku og árið 1909 byrjar hann sjómennsku á Haffara sem hann átti hlut í. Þá kaupir hann Happasæl ásamt fleirum og hafði formennsku á honum til ársins 1915. Þá lét hann af formennsku sökum vanheilsu.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.