Guðjón Tómasson (Gerði)
Guðjón Tómasson, Gerði, var fæddur að Saurum í Staðarsveit þann 30. júlí 1897. Þegar Guðjón var 6 ára gamall fór hann til Guðlaugs Jónssonar í Gerði og ólst þar upp. Guðjón hóf sjómennsku ungur á Halkion I en árið 1923 hefur hann formennsku á Ingólfi Arnarsyni og er hann með þann bát til ársins 1930. Eftir það var hann með ýmsa báta, meðal þeirra eru Víkingur, Hilmir, Birgir, Bjarni og Ingólfur II.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.