Samkomuhúsið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2006 kl. 08:31 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2006 kl. 08:31 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Samkomuhúsið á bíódegi.

Samkomuhúsið stendur á gatnamótum Kirkjuvegs og Vestmannabrautar, og heitir lóðin Mylluhóll. Húsið var vígt í janúar árið 1938 og var það Sjálfstæðisfélagið sem byggði húsið. Þá var húsið næststærsti samkomusalur landsins, aðeins Gamla Bíó í Reykjavík var stærra. Húsið var notað til skemmtanahalds í áratugaraðir. Seinna var byggt við húsið. Hvítasunnukirkjan keypti húsið á tíunda áratugnum og hefur gert húsið að miklu leyti upp. Nú er Samkomuhúsið enn á ný það húsnæði í Eyjum sem hentar einna best til háklassa tónleikahalds og uppákomna.