Bílaeign

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 08:07 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 08:07 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bílaeign Vestmannaeyinga hefur verið þó nokkur í gegnum tíðina og mörgum komið á óvart óvenjumikil bílanotkun miðað við smæð Heimaeyjar.

Fyrsta bifreiðin var skrásett hér 1919 og var það Maxwell flutningabifreið í eigu Eyþórs Þórarinssonar og fleiri. Reyndist sú bifreið illa, enda bærinn síður en svo hannaður til bifreiðaaksturs. Oddgeir Þórarinsson, bróðir Eyþórs, var ökumaður bílsins og var hann fyrsti lögskráði bílstjórinn í bænum. Margir töldu bílinn vera háskatæki og í þokkabót tiltölulega dýrt að fá hann leigðan.


Heimildir