Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Heimaslóð og Siggi bonn
Heimaslóð og Siggi bonn
Aíeðan öldur á Eiðinu brotna og uiiir fugl í klettaskor, mun ég leita í Eyjarnar eins og fyrr i cEsku minnar spor. Þar sern lundinn er Ijúfastur fugla, þar seru lifði Siggi bonn og Biuni bann sótti i sjávardjúp sextiu þúsund tonn. Meðan lífsþorstinn leitar á björtun, meðan leiftrar augans glóð, þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig, ég þrái heimaslóð.
Svo kveður skáldið Ási í Bœ í ljóði sínu, sem hann syngur á ágætri plötu, er gefin vat út veturinn 1973 með lögum eftir nokkra Vest-mannaeyinga til styrktar uppbyggingarstarfi í Vestmannaeyjum eftir gosið. Heitir platan Eyjaliðið.
Asi syngur ljóðið undir fallegu lagi eftir Al-freð Washingron Þórðarson við undirleik Al-freðs og bræðranna Gísla og Arnþórs Helga-sona. Þeir Asi og Alfreð hafa þarna stillt vel saman strengi og skáldið syngur með trega og innlifun tun liðna tíð.
í ljóðinu kannast allir við Binna heitinn í Gröf, þann mikla aflamann. Margur hefur aft-ur á móti grundað yfir hver hann væri þessi Siggi bonn. Var þetta skringilega og undar-lega viðurnefni bara tilfundið hjá Ása, svo að hann gæti rímað á móti tonn, eða lifði hér í Vestmannaeyjum maður af holdi og blóði, sem var nefndur því sérkennilega nafni?
Já, svo sannarlega. Siggi bonn lifði hér í
Vestmannaeyjum á ofanverðri 19. öld og nokk-uð fram á þessa. Hann var fæddur að Hliðar-húsi í Vestmannaeyjum 10. april 1858. For-eldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson smiður og þurrabúðarmaður (að þeirra tima ósið síðar kallaður geglir) og Sigríður Jóns-dóttir.
Siggi bonn var óskilgetinn sonur þeirra, en Guðmundur kvæntist árið 1860 Valgerði Magn-úsdóttur. Milli þeirra feðga var þó alltaf gott samband. Til er erfðaskrá, sem Guðmundur gerði og á þar óskilgetinn sonur hans (Siggi) að erfa allar eignir hans. Síðar er erfðaskránni breytt á þann veg, að hann skuli erfa til jafns við börn þeirra hjóna.
Siggi bonn var einn af þessum kynlegu kvist-um, sem til eru á hverri tíð og setja lit og of-urlitlar gárur á slétt og oft tilbreytingarlaust daglegt líf sambræðra sinna. Hann var af sum¬um talinn greindur, en smáskrítinn. Hann var vínhneigður og blótaði stundum Bakkus allhressilega. Sigurður reri í nokkrar vertíðir með Gísla Eyjólfssyni á Búastöðum á áraskip-inu Elliða, og þrjú ár var hann vinnumaður hjá Guðjóni Jónssyni bónda á Oddstöðum, ár-in 1906 tU 1908.
Siggi bonn andaðist 27. júní 1911 og er þá skráður á sveit í Svaðkoti, 53ja ára gamall.
Siggi þótti undarlegur og hélt fyrirlestra um ýmis efni, sem hann grúskaði í. Auglýsti hann fyrirlestrana og fékk eitt sinn þinghúsið til fyrirlestrahalds. Eitt sinn í sumardagsveislu hjá Gísla á Búastöðum hélt hann langan fyrir-lestur og flutti Guðrúnu húsfreyju hann áður en komið var í veisluna.
Guðmundur, faðir Sigga bonn bjó í Staðar-bænum á Kirkjubæ, og gerði stundum við rokka, því að hann var lagtækur, rýndi hann og skældi sig í þá hluti, sem hann skoðaði og átti að gera við; mun hann af því hafa hlotið uppnefnið geglir.
Um Guðmund gegli eru til nokkrar sögur. Guðmundur var af sumum talinn forspár. Eitt sinn kom til hans húsfreyja í Eyjum með rokk-inn sinn. Ekki var þá vitað um ósamkomulag hjónanna á bænum, en þegar Guðmundur fékk rokkinn og hafði rýnt í hann um stund sagði hann: „Ekki veit ég hvað er að honum, nema ef hann skyldi vanta kærleikann." Nokkrum árum síðar skildu þau hjón samvistum.
Eitt sinn kom Siggi bonn slompaður heim til föður síns að Kirkjubæ. Hann var að koma af sjó og hafði fengið einn fisk í hlut, og hafði selt Bryde kaupmanni bolinn fyrir brenni-víni, en kom með hausinn og færði föður sín-um. Sagði þá Guðmundur, er hann leit á þorsk-hausinn: „Já, sætur er sonaraflinn". Var þetta lengi síðar og er enn haft að orðtaki í Vest-mannaeyjum.
Um Sigga bonn og fleiri Eyjamenn var þetta kveðið:
Einatt Stáli út í bál Ola nadda gerir pota Bjarna grey með svarta sál, sem að lýðir nefna Skota, syngur messu sjós á trjánum Siggi bonn á freðnum bnjánum.
Vísan þarf nokkurra skýringa við: Stáli var formaðurinn á bátnum, sem þeir reru á. Var það Ingimundur Árnason í Götu, sem taldi sig vera launson kaptajns Kohl. Hann hafði viðurnefnið stáli og var formaður með vorbáta. Óli naddi, sjómaður góður, sonur Ól-afs í Koti, sem lengi var bitamaður hjá Árna Diðrikssyni í Stakkagerði. Bjarni Jónsson var til heimilis á Kirkjubæ. Syngur messu, hér er vitnað til fyrirlestrahalds Sigga bonn, og að hann haldi ræður og fyrirlestra á sjónum. Siggi bonn setti saman vísur; reyndar ekki alltaf mikinn skáldskap og þó - á poppöldinni þætti hann góður - og a. m. k. er einn mjög þekktur og lífseigur húsgangur eftir Sigga, sem iðulega er sunginn af Eyjamönnum og er þá veruleg stemmning í mönnum, þegar þeir hefja raust og syngja „Til hákarla".
Til bákarla í V estmannaeyfum fara þeir norðan gaddi í. Hálfkaldir koma þeir að landi, upp á Vertshúsið skunda þeir. Sína sjóblauta vettlinga verða þeir selja upp grútuga.
Hér áður fyrr á Þjóðhátíð Vestmannaeyja í Herjólfsdal heyrðust stundum „brekkukórar" syngja þennan brag við raust, dimmar bassa-raddir sjómanna, sem bergmáluðu í Salta-bergi og Molda. Er þessi bragur sunginn undir alkunnu sálmalagi.
Þá orti Siggi þessa vísu um Bryde kaup-mann í Garðinum:
Bryde er kominn, býst ég við bragnar mega sjá hann, með báða syni sina og sig, sitt hús prýða lcetur hór.
Siggi bonn var einn af mörgum börnum sinn-ar samtíðar, sem mátti ltða sult og seyru, háð og spé, ef þeir féllu ekki að tíðaranda og fá-breyttum atvinnuháttum. Aður fyrr var mikið um uppnefni hér á landi og var það ekki alltaf til gamans eða heiðurs gert, eímdi lengi eftir af þessum ósiði. Jóhann Gunnar Olafsson hefur í síðari út-gáfu af Sögum og Sögnum úr Vestmannaeyjum tekið saman þátt um uppnefni. Telur hann þat upp nokkur uppnefni; og eru sum þeirra óneit-anlega allskringileg. Frá miðri 19. öld í höfuðbók Garðsverslunar finnur hann árið 1852: Eínar grófi, Jón diug-ur, Ólafur jötunuxi, Guðmundur klart, Guð-mundur káfína, Sveinn loði, Jón sæli, Guð-mundur frost, Sigurður snarli (og til var hjallut í Eyjum, sem búið var í og kallaður var Snarla-hjallur), Einar stopp og Magnús kollur. Frá síð-ari hluta 19- aldar eru taldir: Siggi bonn, Guð-mundur geglir, Hannes sladdi, Þóroddur spreng-ir, Ólafur kúkur, Erlendur taðauga, Bjarni skotti, Einar stormur og Runólfur barkrókur. Einnig voru til Gísli pú, Mangi lútpey, Og-mundur flóki, og Mundi pæ. Þessi ósiður mun nú sem betur fer aflagður. En líklega má Siggi betur una við sitt auka-nefni en flestir aðrir. Ekki er ólíklegt, að bonn sé dregið af franska lýsingarorðinu bon(kk.), sem þýðir góður eða kvenkynsmyndinni bonne, sem er borin fram bonn. En á þessum árum var mikið um franskar duggur og skúrukarla hér við land og duggufranska upp á biskví, votralíng og allabaddarí Fransí þekkt og notuð í hverju sjávarplássi í viðskiptum við Frans-menn. Það má vel vera, að Siggi bonn hafi slegið um sig með duggarafrönskunni og meira hefur ekki þurft til. En um Sigga og fleiri, sem hafa ekki verið hátt skrifaðir á sínum jarðvístardögum, má segja, að þá sjálfa og samtíðarmenn þeirra hef-ur síst grunað, að síðar yrði sungið um þá í fleygum Ijóðum og sagnaljóðum (ballöðum), en læknirinn, presturinn og sýslumaðurinn, fyrirmenn þeirra tíma, þá flestir löngu grafnir í gleymsku. (Skráð eftir Eyjólfi Gíslasyni, kirkjubókum, Sögum og sögnum úr Vestm.eyjum og Jóh. Gunnari Olafssyni).