Ólafur Eyjólfsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 11:30 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 11:30 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Eyjólfsson var fæddur í Keflavík 1891. Ólafur fluttist alfarið til Eyja 1909 þá 18 ára gamall. Hann byrjaði sjómennskuna á Lunda I með Guðleifi Elíssyni frá Brúnum. Eftir það keypti Ólafur Stefni (7 tonn) og var þar formaður. Árið 1924 kaupir hann Kára I, seldi hann 1930 og kaupir þá Skúla fógeta I og átti hann þar til hann sökk. Árið 1938 kom nýr Skúli fógeti til landsins og var þá með glæsilegri bátum flotans.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 1 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.