| Árið 1973 hafði tvennt af þessu gerst, byggðin var komin vestur fyrir Hástein og fyllt hafði verið upp í Vilpu. Og stutt var í þriðja atburðinn, þar sem séra Karl Sigurbjörnsson, biskupssonur, hafði sótt um prestsembætti í Eyjum. Raunar rændu Tyrkir ekki en annar atburður átti sér stað, eldgosið í Heimaey, og vildu einhverjir tengja það við Krukkspána gömlu. Í raun stenst það ekki þar sem séra Karl hafði ekki vígst hingað þegar gosið hófst.
| |