„Þingeyri“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
Árið 1930 kaupir Sigurður Sigurjónsson, Siggi á Freyju Ve. húsið, en hann var sonur Sigurjóns fisksala sem var í húsinu 1924 – 1925. Sigurður var í húsinu til ársins 1954, en á árinu 1951 seldi hann húsið Finnboga Friðfinnssyni og Kristjönu Þorfinnsdóttur. Þau fluttu inn í kjallaraíbúðina og ætluðu að vera þar stutt því Sigurður var að byggja hús sitt er stendur við Boðaslóð 15, eitthvað drógst byggingin og flutti Sigurður út árið 1954, fluttu þau Bogi og Kristjana upp, enda orðið þröngt um þau niðri, komin með þrjú börn. Bogi byggði við húsið árið 1955 og stækkaði það. Bogi og Kristjana voru í húsinu til ársins 1959 er þau seldu það. Sveinn Valdimarsson keypti húsið. Sveinn og konan hans, Lára Þorgeirsdóttir voru í húsinu til ársins 1968. Árið 1967 seldi Sveinn kjallarnn, þeim systrunum Guðrúnu og Jónu Eyjólfsdætrum frá Fjósum í Mýrdal.

Árið 1968 selur Sveinn húsið Hilmari Árnasyni, hann var í húsinu til ársins 1974 er hann selur  Brynheiði Ketilsdóttur og Birni Eiríki Jónssyni húsið. Sonur þeirra Guðlaugur Grétar Björnsson í Gerði, endurnýjaði húsið fyrir foreldra sína. Hann setti nýtt á gólf, skipti um vatnslagnir, rafmagn og nýja glugga í húsið, hann skipti einnig um eldhúsinnréttingu.
Árið 1968 selur Sveinn húsið Hilmari Árnasyni og Guðrúnu Jónsdóttur, þau voru í húsinu til ársins 1974 er þau selja Brynheiði Ketilsdóttur og Birni Eiríki Jónssyni húsið. Sonur þeirra Guðlaugur Grétar Björnsson í Gerði, endurnýjaði húsið fyrir foreldra sína. Hann setti nýtt á gólf, skipti um vatnslagnir, rafmagn og nýja glugga í húsið, hann skipti einnig um eldhúsinnréttingu.
Stefán Pétur Bjarnason og Viktoría Gísladóttir, keyptu Þingeyri árið 1982. Stefán útbjó skiltið með nafni húsins á. Sigurfinnur Sigurfinnsson teiknikennari, hannaði stafina. Stefán skipti um járn á þaki húsins, þegar hann var þar. Stefán og Viktoría seldu húsið árið 1993, og keypti Sigríður Óskarsdóttir og Kjartan Már Ívarsson húsið.

Sigga og Kjartan voru í húsinu til ársins 1995.
Sigga og Kjartan voru í húsinu til ársins 1995.

Útgáfa síðunnar 28. desember 2005 kl. 08:45

Þingeyri

Húsið Þingeyri stendur við Skólaveg 37. Það var reist árið 1921.

Húsið Þingeyri, við Skólaveg 37 í Vestmannaeyjum, er byggt árið 1921. Jón Jónsson byggði húsið og flutti hann ásamt fjölskyldu sinni í húsið og bjuggu þau í því til ársins 1924, er Sigurjón Sigurðsson, fisksali kaupir það og flytur inn ásamt fjölskyldu sinni. Sigurjón bjó í húsinu í eitt ár. Árið 1925 áttu Sigurjón og Hallgrímur Guðjónsson, skipti á húsum, Hallgrímur átti húsið Grímsstaði, við Skólaveg 27. Hallgrímur tók nafnið Grímsstaði með sér í flutningunum og ætlaði að kalla húsið Grímsstaði, en bæjarbúar héldu áfram að kalla húsið Þingeyri, þannig að ekki gekk það upp að breyta nafninu. Hallgrímur lést stuttu eftir að hann flutti inn, er hann tók útbyrgðis af vélbátnum Emmu VE og druknaði. Kona hans, Vilhelmína Jónasdóttir og börn fluttu í kjallaraíbúðina og leigðu Þorsteini Þ.Víglundssyni efri hæðina.

Árið 1930 kaupir Sigurður Sigurjónsson, Siggi á Freyju Ve. húsið, en hann var sonur Sigurjóns fisksala sem var í húsinu 1924 – 1925. Sigurður var í húsinu til ársins 1954, en á árinu 1951 seldi hann húsið Finnboga Friðfinnssyni og Kristjönu Þorfinnsdóttur. Þau fluttu inn í kjallaraíbúðina og ætluðu að vera þar stutt því Sigurður var að byggja hús sitt er stendur við Boðaslóð 15, eitthvað drógst byggingin og flutti Sigurður út árið 1954, fluttu þau Bogi og Kristjana upp, enda orðið þröngt um þau niðri, komin með þrjú börn. Bogi byggði við húsið árið 1955 og stækkaði það. Bogi og Kristjana voru í húsinu til ársins 1959 er þau seldu það. Sveinn Valdimarsson keypti húsið. Sveinn og konan hans, Lára Þorgeirsdóttir voru í húsinu til ársins 1968. Árið 1967 seldi Sveinn kjallarnn, þeim systrunum Guðrúnu og Jónu Eyjólfsdætrum frá Fjósum í Mýrdal.

Árið 1968 selur Sveinn húsið Hilmari Árnasyni og Guðrúnu Jónsdóttur, þau voru í húsinu til ársins 1974 er þau selja Brynheiði Ketilsdóttur og Birni Eiríki Jónssyni húsið. Sonur þeirra Guðlaugur Grétar Björnsson í Gerði, endurnýjaði húsið fyrir foreldra sína. Hann setti nýtt á gólf, skipti um vatnslagnir, rafmagn og nýja glugga í húsið, hann skipti einnig um eldhúsinnréttingu. Stefán Pétur Bjarnason og Viktoría Gísladóttir, keyptu Þingeyri árið 1982. Stefán útbjó skiltið með nafni húsins á. Sigurfinnur Sigurfinnsson teiknikennari, hannaði stafina. Stefán skipti um járn á þaki húsins, þegar hann var þar. Stefán og Viktoría seldu húsið árið 1993, og keypti Sigríður Óskarsdóttir og Kjartan Már Ívarsson húsið. Sigga og Kjartan voru í húsinu til ársins 1995.

Árið 1986 eignast Sigurbára Sigurðardóttir kjallaraíbúðina. Eftir að Jóna deyr, arfleiðir Guðrún íbúðina Georgi Skæringssyni á Vegbergi, en Georg lést áður en Guðrún dó, svo Sigurbára arfleiddi íbúðina.

Óskar Pétur Friðriksson og Torfhildur Helgadóttir kaupa efri hæðir húsins árið 1995, og hafa búið þar síðan. Þau hafa tekið alla íbúðina í gegn, endurnýjað allt háaloftið, stofu, eldhús og klósett.

Sigurbára seldi Ástu Guðrúnu Jóhannesdóttur kjallaraíbúðina í árslok 1995. Ásta seldi Óskari P. Friðrikssyni og Torfhildi íbúðina 1997. Grétar Már Óskarsson keypti íbúðina af þeim árið 1998 og seldi hana Goremykina Kristina árið 2003, og býr hún þar enn. Kristina hefur tekið alla íbúðina í gegn og endurnýjað.

Heimildir: Munnlegar. Elías Gunnlaugsson. Erlendur Stefánsson. Friðfinnur Finnbogason. Guðlaugur Grétar Björnsson. Júlíus Hallgrimsson. Kjartan Már Ívarsson. Kristjana Þorfinnsdóttir. Maggý Sigurjónsdóttir. Sigurbára Sigurðardóttir. Stefán Pétur Bjarnason. Sveinn Valdimarsson.

Skriflegar. Jóna Björg Guðmundsdóttir, skjalavörður.

Samantekt, í desember 2005, Óskar Pétur Friðriksson íbúi á Þingeyri við Skólaveg 37 Vestmannaeyjum.