„Friðarhöfn“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:DSCF7678.jpg|thumb|300px|right|Friðarhöfn]] | [[Mynd:DSCF7678.jpg|thumb|300px|right|Friðarhöfn]] | ||
Höfnin '''Friðarhöfn''' er vestasti hluti hafnarinnar. Framkvæmdir hófust árið 1943 þegar | Höfnin '''Friðarhöfn''' er vestasti hluti hafnarinnar. Framkvæmdir hófust árið 1943 þegar þurfti að dýpka höfnina í [[Botn|Botni]] en eiginlegar framkvæmdir hófust ekki fyrr en í lok árs 1954. Þá voru austur- og suðurkantar bryggjunnar settir niður. Nokkurt hlé varð síðan á framkvæmdum í Friðarhöfn og voru norður- og vesturkantar settir niður árið 1960. Bryggjan var síðan endurbyggð árin 1965 og 1966 og enn á ný árin 1997-1999 og frá 2002 og stendur enn, en áætlað er að ljúka við framkvæmdir árið 2006. | ||
Friðarhöfn má gjarnan skipta í tvo hluta: | Friðarhöfn má gjarnan skipta í tvo hluta: | ||
Lína 8: | Lína 8: | ||
Viðlegurými og lengd hafnarkanta eru við Friðarhafnarbryggju 70 m austan og 210 m norðan og Friðarhafnardokkin er 480 m að lengd. | Viðlegurými og lengd hafnarkanta eru við Friðarhafnarbryggju 70 m austan og 210 m norðan og Friðarhafnardokkin er 480 m að lengd. | ||
Heitið Friðarhöfn er fengið af því hversu kyrrt er þarna innst í höfninni. Einnig töluðu sjómenn á stríðsárunum að þeir væru komnir í ''friðar''höfn, þegar | Heitið Friðarhöfn er fengið af því hversu kyrrt er þarna innst í höfninni. Einnig töluðu sjómenn á stríðsárunum um að þeir væru komnir í ''friðar''höfn, þegar þeir lögðu skipum sínum við bryggju í Vestmannaeyjahöfn. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Helgi Benónýsson, 1974. '' | * Helgi Benónýsson, 1974. ''Fjörutíu ár í Eyjum'', Reykjavík: Vesturhús hf | ||
* Haraldur Guðnason. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár'', II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991. | * Haraldur Guðnason. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár'', II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Höfnin]] | [[Flokkur:Höfnin]] |
Útgáfa síðunnar 24. nóvember 2005 kl. 22:46
Höfnin Friðarhöfn er vestasti hluti hafnarinnar. Framkvæmdir hófust árið 1943 þegar þurfti að dýpka höfnina í Botni en eiginlegar framkvæmdir hófust ekki fyrr en í lok árs 1954. Þá voru austur- og suðurkantar bryggjunnar settir niður. Nokkurt hlé varð síðan á framkvæmdum í Friðarhöfn og voru norður- og vesturkantar settir niður árið 1960. Bryggjan var síðan endurbyggð árin 1965 og 1966 og enn á ný árin 1997-1999 og frá 2002 og stendur enn, en áætlað er að ljúka við framkvæmdir árið 2006.
Friðarhöfn má gjarnan skipta í tvo hluta:
- Friðarhafnardokkin
- Friðarhafnarbryggjan
Viðlegurými og lengd hafnarkanta eru við Friðarhafnarbryggju 70 m austan og 210 m norðan og Friðarhafnardokkin er 480 m að lengd.
Heitið Friðarhöfn er fengið af því hversu kyrrt er þarna innst í höfninni. Einnig töluðu sjómenn á stríðsárunum um að þeir væru komnir í friðarhöfn, þegar þeir lögðu skipum sínum við bryggju í Vestmannaeyjahöfn.
Heimildir
- Helgi Benónýsson, 1974. Fjörutíu ár í Eyjum, Reykjavík: Vesturhús hf
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.