„Binni í Gröf“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:


== Áhugamál og önnur afrek ==
== Áhugamál og önnur afrek ==
Á yngri árum var Binni fimur með boltann og keppti með [[Knattspyrnufélagið Týr|knattspyrnuliði Týs]] og var í fremstu röð í fimleikum.  Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti af vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.
Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum  [[Knattspyrnufélagið Týr|knattspyrnufélagsins Týs]] og keppti með þeim en hann var í fremstu röð í fimleikum.  Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti af vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.


Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.  
Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.  

Útgáfa síðunnar 19. september 2005 kl. 21:42

Benóný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem Binni í Gröf og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í Vestmannaeyjum og var sonur formannsins Friðriks Benónýssonar og Oddnýjar Benediktsdóttur. Kona Binna var Katrín Sigurðardóttir frá Þinghól í Hvolhreppi og áttu þau saman 8 börn. Mörg börn Binna tóku föður sinn til fyrirmyndar og starfa við sjóinn.

Sjómennska

Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á höfn. Ekki var hann fermdur þegar hann hóf að róa. Það var á smáferju hjá Jakobi Tranberg og kom strax í ljós mikill áhugi og fiskisæld. Ásamt þremur vinum sínum hóf Binni formennsku á sexæring 15 ára gamall. Fiskuðu félagarnir mikið undir styrkri stjórn Binna.

Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni réri fyrstu vertíðar sínar á vélbát á m/b Nansen og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á Brekku. Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gúllu. Þar var hann starfandi þrjár vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, m/b Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar, m/b Þor og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b Gullborg og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát. Það var hans happaskip.

Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir og fékk titilinn samtals sjö sinnum. Nokkrum sinnum varð hann hæstur yfir landið.

Benóný hafði ávallt duglegri skipshöfn að stjórna enda samrýmdist hverskonar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.

Áhugamál og önnur afrek

Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum knattspyrnufélagsins Týs og keppti með þeim en hann var í fremstu röð í fimleikum. Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti af vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.

Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.



Heimildir

  • Benóný Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1972. bls. 46.