„Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 10: | Lína 10: | ||
*[http://www.fiv.is Heimasíða Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum] | *[http://www.fiv.is Heimasíða Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum] | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Skólar]] |
Útgáfa síðunnar 10. ágúst 2005 kl. 14:35
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er skóli á framhaldsskólastigi sem tók formlega til starfa haustið 1979 við samruna Vélskólans í Vestmannaeyjum, Iðnskólans í Vestmannaeyjum og framhaldsdeilda Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Í upphafi árs 1997 tók svo Framhaldsskólinn yfir rekstur Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum.
Í upphafi heyrðu elstu bekkir grunnskólans undir Framhaldsskólann, var þá sami skólameistari yfir Framhaldsskólanum og Gagnfræðaskólanum og sumir kennarar kenndu á báðum skólastigunum.
Nemendafjöldi fyrsta árið var 85 nemendur. Þeim fjölgaði fram til ársins 1997 að nemendafjöldi náði 300. Það hefur nokkuð haldist í stað síðan, með sveiflur niður í um 250 nemendur.
Byggingin sem Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í var byggður fyrir Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum upprunalega, en Þorsteinn Víglundsson stóð fyrir byggingunni á sínum tíma. Áður en að féstyrkur var veittur til byggingarinnar hafði Þorsteinn safnað saman börnum bæjarins sem voru á gagnfræðaskólaaldri og látið þá hjálpa sér við að grafa grunninn fyrir húsið.
Heimildir