„Næturfjör“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 39: Lína 39:
:''í dalnum í nótt.
:''í dalnum í nótt.
                  
                  
::Lag: [[Ólafur M Aðalsteinsson
::Lag: [[Ólafur M Aðalsteinsson]]
::Texti: [[Guðjón Weihe]]
::Texti: [[Guðjón Weihe]]

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2005 kl. 09:28

Þjóðhátíðarlag
1989 1990 1991
Hamrarnir háu
í heillandi tign,
tjöldin og tjörnin
svo töfrandi lygn.
Lokkandi laða
í logunum skýrð.
Hvern sem að kemur
í klettana dýrð.
Hér finn ég framandi
og funheita glóð,
sem eldur í æðunum
ólgar mitt blóð.
Danslagið dunar
við dillandi söng.
Nú fer að nátta
og nóttin er löng.
Sælt er að sitja við
sjafnareld þann,
sem umvefur ungann
og ástfangin mann.
Komdu minn kæri
og kysstu mig fljótt.
Eigum við vinur
að dansa í nótt.
Viðlag:
Lífsgleðin ljómar
við logandi bál.
Kvöldsöngva kyrjar
hver einasta sál.
Lífinu lætur
að líða svo fljótt.
Dönsum og dönsum
í dalnum í nótt.
Lag: Ólafur M Aðalsteinsson
Texti: Guðjón Weihe