„Þjóðhátíð í Eyjum“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Lagið '''Þjóðhátíð í Eyjum''' var [[Þjóðhátíð| | Lagið '''Þjóðhátíð í Eyjum''' var [[Þjóðhátíð|þjóðhátíðarlag]] Vestmannaeyja árið 1991. | ||
:''Meðan húmið siglir sund | :''Meðan húmið siglir sund |
Útgáfa síðunnar 21. júlí 2005 kl. 10:05
Lagið Þjóðhátíð í Eyjum var þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 1991.
- Meðan húmið siglir sund
- sælufunda leitum.
- Göngum saman létt í lund,
- lífsins gleði neitum.
- Þessi dalur, þetta bál,
- þessar fögru nætur.
- Veigar dans og vinarmál
- verma hjartarætur.
- Ástin vekur unga snót,
- allt er fegurð vafið.
- Bjarma slær á gras og grjót,
- Gleymmér ei og hafið.
- Amorskröftum nóttin nær
- nötra fjallastráin.
- Engin veit hvern endi fær
- ævintýraþráin.
- Vinur hvert sem ferðu frá
- fjalladýrð og meyjum.
- Meðan lifir þú munt þrá
- þjóðhátíð í Eyjum.
- Hærra öll nú hefjum róm
- hér við loga bjarta.
- Látum bergsins enduróm
- ylja hverju hjarta.
- Verum kát og frjáls og frí
- felum dapurt sinni.
- Eyjalögin enn á ný
- efla náin kynni.
- Lag: Geirmundur Valtýsson
- Texti: Guðjón Weihe