„Round Table 11“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 22: Lína 22:
* [http://www.roundtable.is/rt11 Vefur RT-11]
* [http://www.roundtable.is/rt11 Vefur RT-11]
* [http://www.roundtable.is Vefur RT Ísland]
* [http://www.roundtable.is Vefur RT Ísland]
[[Flokkur:Félög]]

Útgáfa síðunnar 30. júní 2005 kl. 15:45

Round Table 11, Vestmannaeyjar var stofnaður formlega þann 12. apríl 1997. Móðurklúbburinn, RT-3 úr Reykjavík, hélt þann dag sinn aðalfund í Vestmannaeyjum, og fór formleg stofnun Vestmannaeyska klúbbsins fram á þeim fundi. Viðstaddir voru fulltrúar frá flestum klúbbum á landinu, ásamt nokkrum norðmönnum úr Round Table klúbb númer 11 þar í landi, sem er staddur í Trondheim. Stofnfélagar klúbbsins voru Aðalsteinn Baldursson, Björgvin Arnaldsson, Elías J. Friðriksson, Hlynur Stefánsson, Heiðar Hinriksson, Ólafur Þór Snorrason og Sigurður Árnason.

RT-11 var formlega tekinn inn í Round Table Ísland á aðalfundi/árshátíð RTÍ sem haldinn var þann 25. apríl 1997 í Skíðaskálanum í Hveradölum.

Starf Round Table í Vestmannaeyjum einkennist af miklum umræðum, uppákomum og ferðalögum, en meðlimir hafa farið í ferðir til klúbba í Noregi, Danmörku, Skotlandi, Suður Afríku og Englandi, ásamt því að hafa fengið í heimsókn RT félaga frá hinum ýmsu löndum.

Starf Round Table klúbba snýst að mjög miklu leyti um innanlands- og alþjóðasamstarf. Þegar RT félagar eru að ferðast, hvort sem er fyrir hreyfinguna, eða persónulega, þá er hægt að hafa samband við félaga í viðkomandi landi eða borg, og fá gistingu heima hjá einhverjum félaga án nokkurra vandræða. Við þetta myndast náið samband milli viðkomandi félaga og fjölskyldna, sem bæði félagar og klúbbar njóta góðs af. Einnig hafa landshreyfingar hinna ýmsu landa í boði ferðir sem félagar út um allan heim geta komist í, og geta þannig kynnst landi og þjóð á mun nánari hátt en ella.

Formenn RT-11

Tenglar