„Páll Þorbjörnsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Páll Þorbjörnsson.jpg|thumb|200px|Páll Þorbjörnsson, skipstjóri og alþingismaður.]]
[[Mynd:Páll Þorbjörnsson.jpg|thumb|200px|Páll Þorbjörnsson, skipstjóri og alþingismaður.]]


'''Páll Þorbjörnsson, skipstjóri''', var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937.  
'''Páll Þorbjörnsson, skipstjóri''', var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937.  

Útgáfa síðunnar 30. júní 2005 kl. 13:58

Páll Þorbjörnsson, skipstjóri og alþingismaður.

Páll Þorbjörnsson, skipstjóri, var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937.

Páll fæddist í Vatnsfirði þann 7. Október 1906. Páll lést í Vestmannaeyjum þann 20. febrúar 1975. Foreldrar Páls eru Þorbjörn Þórðarsson (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal og Guðrún Pálsdóttir (fædd 25. Janúar 1883, dáin 3. júlí 1971). Páll kvæntist þann 20. maí 1933 Bjarnheiði Jónu (fædd 7. september 1910) dóttur Guðmundar Guðmundssonar bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ólafar Jónsdóttur.

Páll lauk gagnfræðiprófi í Reykjavík ári 1922. Páll tók farmannapróf árið 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði sjómennsku frá sextán ára aldri þar til hann varð 24 ára gamall eða á árunum 1920-1932. Þá varð hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár en þá kallaði sjórinn aftur til hans og eftir það var hann skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Páll Stundaði kaupsýslustörf síðustu árin sem hann lifði. Hann var í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937. Yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937.

Páll var skipstjóri á Skaftfellingi á árunum 1942—1945.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930