„Skaftfellingur VE-33“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
m
Heimild : Ólafur Guðnason samkvæmt samtali.
Ekkert breytingarágrip
m (Heimild : Ólafur Guðnason samkvæmt samtali.)
Lína 2: Lína 2:
'''Skaftfellingur VE-33''' var vöruflutningaskip sem lengst af var gert út frá Vestmannaeyjum en einnig nýtt til fiskveiða. Það var án efa eitt frægara sjóskip Vestmannaeyja fyrr eða síðar. Það var smíðað árið 1918 fyrir hlutafélag sem stofnað var um strandsiglingar til Víkur og Vestur-Skaftafellssýslu.

Skipið var smíðað í Troense í Danmörku undir stjórn færeysk-ættaðs skipasmiðs að nafni Jakobsen. Hann þótti vanda verkið gríðarlega mikið, enda tafðist smíði skipsins um marga mánuði vegna þess. Það var ekki fyrr en í mars 1918 sem skipið var tilbúið til brottfarar, en áhöfn skipsins — Jón Högnason, skipstjóri, Finnbogi Finnbogason, stýrimaður, Ormur Ormsson, fyrsti vélstjóri og Elías Högnason, annar vélstjóri — höfðu farið út til Danmerkur með varðskipinu Islands Falk í maí 1917. Við komu þeirra kom í ljós að eingöngu var búið að leggja hluta bandanna, og þeir urðu að bíða í tíu mánuði eftir sjósetningu skipsins.
Skipið var smíðað í Troense í Danmörku undir stjórn færeysk-ættaðs skipasmiðs að nafni Jakobsen. Hann þótti vanda verkið gríðarlega mikið, enda tafðist smíði skipsins um marga mánuði vegna þess. Það var ekki fyrr en í mars 1918 sem skipið var tilbúið til brottfarar, en áhöfn skipsins — Jón Högnason, skipstjóri, Finnbogi Björnsson, stýrimaður, Ormur Ormsson, fyrsti vélstjóri og Elías Högnason, annar vélstjóri — höfðu farið út til Danmerkur með varðskipinu Islands Falk í maí 1917. Við komu þeirra kom í ljós að eingöngu var búið að leggja hluta bandanna, og þeir urðu að bíða í tíu mánuði eftir sjósetningu skipsins.

Skipið fékk nafnið Skaftfellingur og var fyrst um sinn skráð í Reykjavík. Það hlaut ekki sérstakt skráningarnúmer fyrr en árið 1948, þegar Helgi Benediktsson tók við sem útgerðarmaður þess. Skipið var með 48 hestafla Alfa-vél og bar 60 smálestir. Það var fermt í Kaupmannahöfn, ýmsum varningi. Skipið varð að bíða í Kaupmannahöfn fram til 1. apríl, vegna þess að heimstyrjöldin fyrri, sem þá stóð sem hæst, gerði það illmögulegt að útvega olíu til heimfarar. Enn fremur var ómögulegt að vátryggja skipið fyrr en 1. apríl.

403

breytingar

Leiðsagnarval