„Samkomuhúsið“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 6: | Lína 6: | ||
[[Flokkur:Hús]] | [[Flokkur:Hús]] | ||
[[Flokkur:Kirkjuvegur]] | [[Flokkur:Kirkjuvegur]] | ||
[[Flokkur:Vestmannabraut]] | [[Flokkur:Vestmannabraut]] |
Útgáfa síðunnar 27. ágúst 2007 kl. 08:32
Samkomuhúsið stendur á gatnamótum Kirkjuvegar og Vestmannabrautar, og heitir lóðin Mylluhóll. Húsið var vígt 22. janúar árið 1938 en húsið var í byggingu frá því í október 1936 fram í janúar 1938. Það var Sjálfstæðisfélagið sem byggði húsið. Þá var húsið næststærsti samkomusalur landsins, aðeins Gamla Bíó í Reykjavík var stærra. Húsið var notað til skemmtanahalds í áratugaraðir.
Seinna var byggt við húsið. Það var á árunum 1963-65. Hvítasunnukirkjan keypti húsið árið 1993 og hefur gert húsið að miklu leyti upp. Kirkjan flutti starfsemi sína í húsið úr Betel við Faxastíg árið 1995. Nú er Samkomuhúsið enn á ný það húsnæði í Eyjum sem hentar einna best til háklassa tónleikahalds og uppákomna.