„Kristín Snorradóttir (ljósmóðir)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
Kristín nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé, er nefnd ljósmóðir á manntali 1816, þá búsett á Vilborgarstöðum. Hún var skráð vinnukona, ekkja á Vilborgarstöðum 1845. Hún stundaði ljósmóðurstörf í Eyjum um árabil á fyrri hluta 19. aldar.<br> | Kristín nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé, er nefnd ljósmóðir á manntali 1816, þá búsett á Vilborgarstöðum. Hún var skráð vinnukona, ekkja á Vilborgarstöðum 1845. Hún stundaði ljósmóðurstörf í Eyjum um árabil á fyrri hluta 19. aldar.<br> | ||
Maki (20. nóv. 1804): Guðmundur Jónsson bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], f. | Maki (20. nóv. 1804): [[Guðmundur Jónsson (hreppstjóri)|Guðmundur Jónsson]] bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], f. 1757, d. 4. apríl 1836.<br> | ||
Af börnum þeirra má telja: | Af börnum þeirra má telja: | ||
Lína 23: | Lína 23: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur. | *Prestþjónustubækur. | ||
*[[Sigfús M. Johnsen]] | *[[Sigfús M. Johnsen]]. ''Saga Vestmannaeyja I''. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946. bls 149/89. | ||
}} | }} | ||
Útgáfa síðunnar 1. ágúst 2007 kl. 14:29
Kristín Snorradóttir húsmóðir, ljósmóðir á Vilborgarstöðum fæddist 1773 í Fjósakoti í Meðallandi í V-Skaftafellssýslu og lézt 26. febrúar 1855 á Vilborgarstöðum.
Foreldrar: Snorri bóndi í Fjósakoti, f. 1732, d. 1784, Þórðar á Maríubakka í Fljótshverfi í V-Skaftafellssýslu, f. 1695, Snorrasonar bónda á Maríubakka Björnssonar og kona Snorra í Fjósakoti, Guðbjörg, f. 1744, d. 12. maí 1785, Eyjólfs bónda og græðara á Kvískerjum í Öræfum og Ytri-Tungu í Landbroti í V-Skaftafellssýslu, Jónssonar og konu Eyjólfs, Sesselju Jónsdóttur.
Guðbjörg móðir Kristínar flúði í móðuharðindunum með dætur sínar að Nesi í Selvogi. Hún lézt þar, en dætur hennar fóru aftur austur.
Kristín nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé, er nefnd ljósmóðir á manntali 1816, þá búsett á Vilborgarstöðum. Hún var skráð vinnukona, ekkja á Vilborgarstöðum 1845. Hún stundaði ljósmóðurstörf í Eyjum um árabil á fyrri hluta 19. aldar.
Maki (20. nóv. 1804): Guðmundur Jónsson bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari á Vilborgarstöðum, f. 1757, d. 4. apríl 1836.
Af börnum þeirra má telja:
- Eyjólfur, f. 8. des. 1805.
- Jón, f. 29. júní 1807, d. 5. júlí s. ár.
- Jón, f. 10. okt. 1808, d. 17. okt s. ár.
- Guðbjörg, f. 3. jan. 1810, d. 3. febr. s. ár.
- Þórdís, f. 8. okt. 1811, d. 20. okt. s. ár.
- Snorri, f. 6. febr. 1813 og
- Elísabet, f. 11. okt. 1815, d. 27. júní 1837.
Aðeins Eyjólfur og Elísabet eru hjá þeim 1816.
Heimildir
- Upphaflegur höfundur var Víglundur Þór Þorsteinsson
- Björn Magnússon: Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973.
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja I. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946. bls 149/89.