„Blik 1980/Hafsteinn Stefánsson (kvæði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(skv. ábendingu frá Sævaldi Elíassyni)
Lína 10: Lína 10:
:''Sýnist mér það sannleiksdropi tær''
:''Sýnist mér það sannleiksdropi tær''
:''að sjáist ekki gróm á hegðun vorri,''
:''að sjáist ekki gróm á hegðun vorri,''
:''ef mann bara hafa tungur tvær''
:''ef menn bara hafa tungur tvær''
:''og tala eftir þörfum sitt með hvorri.''
:''og tala eftir þörfum sitt með hvorri.''


{{Blik}}
{{Blik}}

Útgáfa síðunnar 27. júlí 2007 kl. 08:39

Hafsteinn Stefánsson, skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:

Beggja skauta sigling ævin er,
í áttina til grafarinnar þokast.
Djúpa ristu í hafið skútan sker,
en skurðurinn í kjölfarinu lokast.

Hafsteinn sat þingmálafund. Þá kvað hann:

Sýnist mér það sannleiksdropi tær
að sjáist ekki gróm á hegðun vorri,
ef menn bara hafa tungur tvær
og tala eftir þörfum sitt með hvorri.