„Stakkagerði“: Munur á milli breytinga
(Smáleiðr.) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
[[Flokkur:Hús]] | [[Flokkur:Hús]] | ||
[[Flokkur:Örnefni]] | [[Flokkur:Örnefni]] | ||
[[Flokkur:Stakkagerðistún]] |
Útgáfa síðunnar 6. júlí 2007 kl. 11:01
Stakkagerði var bær á Stakkagerðistúni, líklega nærri þeim stað þar sem Alþýðuhúsið er í dag, og dregur túnið nafn sitt af bænum.
Sögufrægasti einstaklingurinn sem bjó þar mun hafa verið Guðríður Símonardóttir, eða Tyrkja-Gudda eins og hún var yfirleitt kölluð eftir heimkomuna frá Algeirsborg, en hún var numin brott frá Vestmannaeyjum í Tyrkjaráninu árið 1627. Raunar skilaði hún sér aldrei aftur til Vestmannaeyja, heldur giftist hún séra Hallgrími Péturssyni, sálmaskáldi, og bjó með honum fyrst í Hvalsnesþingum á Reykjanesi og síðar í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til æviloka hans. Eftir brottnám Guðríðar bjó maður hennar, Eyjólfur Sölmundarson, í Stakkagerði en hann drukknaði skömmu áður en Guðríður kom aftur til Íslands.
Táknrænn minnisvarði var reistur í minningu Guðríðar fyrir nokkrum árum og stendur austast á Stakkagerðistúni.