„Axel Halldórsson (kaupmaður)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 14: | Lína 14: | ||
[[Flokkur:Oddfellow]] | [[Flokkur:Oddfellow]] | ||
[[Flokkur:Skátar]] | [[Flokkur:Skátar]] | ||
[[Flokkur: | [[Flokkur:Þórsarar]] |
Útgáfa síðunnar 21. júní 2007 kl. 09:46
Axel Halldórsson fæddist í Vestmannaeyjum 11. júní 1911 og lést 31. maí 1990. Hann var sonur Halldórs Gunnlaugssonar læknis og Önnu Gunnlaugsson sem var fædd og uppalin í Danmörku. Árið 1936 kvæntist Axel Sigurbjörgu Magnúsdóttur, dóttur Jóns á Sólvangi. Börn þeirra voru Anna Dóra, Gunnlaugur, Kristrún, Hildur, Magnús og Halldór.
Árið sem Axel fermdist drukknaði faðir hans. Móðir hans setti þá á laggirnar verslun í Vestmannaeyjum sem hún rak lengi. Árið 1928 fór Axel til verslunarnáms í Danmörku og lauk þar námi 1932. Að námi loknu kom hann heim og hóf störf í verslun móður sinnar en stofnaði árið 1938 heildverslunina Óðin og seldi fiskiskip, veiðarfæri og fleiri vörutegundir. Þetta fyrirtæki rak Axel í Vestmannaeyjum í meira en þrjá áratugi.
Axel var á yngri árum virkur í félagslífi í Vestmannaeyjum, var t.d. meðal stofnfélaga Golfklúbbs Vestmannaeyja, starfaði í Íþróttafélaginu Þór, Skátafélaginu Faxa, Karlakór Vestmannaeyja og Oddfellow.
Innan við fimmtugt varð Axel sjúkdómi að bráð sem síðan hrjáði hann það sem hann átti ólifað, Parkinson-veiki. Í hans tilfelli fór sjúkdómurinn hægt en sífellt versnandi og hann sagði stundum í gamni að hann mundi eiga met í langlífi með þennan sjúkdóm. Vissulega voru veikindi hans þó ekkert gamanmál; þau gerðu hann óvinnufæran, í rauninni löngu áður en hann hætti störfum og bökuðu honum bæði þjáningar og margs konar erfiðleika.
Heimildir
- Vésteinn Ólason. Morgunblaðið, 12. júní 1990. Minningargrein um Axel Halldórsson.