„Guðmundur Vigfússon (Holti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Vigfússynir.jpg|thumb|300px|Jón, bróðir Guðmunds, með Guðmundi í júní 1982.]] | [[Mynd:Vigfússynir.jpg|thumb|300px|Jón, bróðir Guðmunds, með Guðmundi í júní 1982.]] | ||
'''Guðmundur Vigfússon''' fæddist 10. febrúar 1906 og lést 6. október 1997. Foreldrar hans voru hjónin [[Guðleif Guðmundsdóttir]] frá [[Vesturhús]]um í Vestmannaeyjum og [[Vigfús Jónsson]] í [[Tún (hús)|Tún]]i í Vestmannaeyjum. Guðmundur ólst upp í [[Holt]]i. Guðmundur var kvæntur Stefaníu Guðrúnu Einarsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, þau Vigfús Sverri og Erlu. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum 1957 og bjó lengst af í Hafnarfirði, þar af á Hrafnistu í Hafnarfirði frá 1978. | '''Guðmundur Vigfússon''' fæddist 10. febrúar 1906 og lést 6. október 1997. Foreldrar hans voru hjónin [[Guðleif Guðmundsdóttir]] frá [[Vesturhús]]um í Vestmannaeyjum og [[Vigfús Jónsson (formaður)|Vigfús Jónsson]] í [[Tún (hús)|Tún]]i í Vestmannaeyjum. Guðmundur ólst upp í [[Holt]]i. Guðmundur var kvæntur Stefaníu Guðrúnu Einarsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, þau Vigfús Sverri og Erlu. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum 1957 og bjó lengst af í Hafnarfirði, þar af á Hrafnistu í Hafnarfirði frá 1978. | ||
Guðmundur tók vélstjóra- og skipstjórapróf 18 ára gamall og árið 1946 „öldunginn" í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Guðmundur var formaður á [[Vonin]]ni VE 113. Árið 1981 var Guðmundi afhent heiðursskjal Sjómannadagsráðs í Vestmannaeyjum með þökk fyrir gifturík störf í þágu sjómannastéttarinnar og byggðarlagsins. | Guðmundur tók vélstjóra- og skipstjórapróf 18 ára gamall og árið 1946 „öldunginn" í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Guðmundur var formaður á [[Vonin]]ni VE 113. Árið 1981 var Guðmundi afhent heiðursskjal Sjómannadagsráðs í Vestmannaeyjum með þökk fyrir gifturík störf í þágu sjómannastéttarinnar og byggðarlagsins. |
Útgáfa síðunnar 19. júní 2007 kl. 10:29
Guðmundur Vigfússon fæddist 10. febrúar 1906 og lést 6. október 1997. Foreldrar hans voru hjónin Guðleif Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum í Vestmannaeyjum og Vigfús Jónsson í Túni í Vestmannaeyjum. Guðmundur ólst upp í Holti. Guðmundur var kvæntur Stefaníu Guðrúnu Einarsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, þau Vigfús Sverri og Erlu. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum 1957 og bjó lengst af í Hafnarfirði, þar af á Hrafnistu í Hafnarfirði frá 1978.
Guðmundur tók vélstjóra- og skipstjórapróf 18 ára gamall og árið 1946 „öldunginn" í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Guðmundur var formaður á Voninni VE 113. Árið 1981 var Guðmundi afhent heiðursskjal Sjómannadagsráðs í Vestmannaeyjum með þökk fyrir gifturík störf í þágu sjómannastéttarinnar og byggðarlagsins.
Loftur Guðmundsson samdi formannavísu um Guðmund:
- Að veiðum Guðmund Vigfússon
- virðar telja frækinn,
- hleður úr græði glæsta Von
- garpur miðasækinn.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Guðmund:
- Sjafnar heiðar siglir Von,
- sær þá reiður hvæsir,
- Gvendur veiðinn Vigfússon
- valinn skeiðar ræsir.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Von stýrir Vigfússonur
- valinn, sjós um dalinn,
- Guðmundur, glaður þundur,
- garpur frá Holti snarpur.
- Nót þorska nú í rótar
- njóturinn, afla skjótur,
- hræðist sizt hranna æði,
- halurinn, drengur valinn.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.