|
|
The content of the new revision is missing or corrupted. |
Lína 1: |
Lína 1: |
| [[Mynd:Landlyst1.jpg|thumb|left|250px|Landlyst þegar húsið stóð við Strandveg 43b.]]
| |
| Húsið Landlyst er eitt af elstu húsum í Eyjum. Húsið stóð við [[Strandvegur|Strandveg]] 43b fram til ársins 1992, er það var tekið niður og friðlýst.
| |
|
| |
|
| [[Mynd:Landlyst.jpg|thumb|right|250px|Landlyst á Skansinum.]]
| |
| Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni.
| |
| Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.
| |
|
| |
| Húsið var byggt af [[Matthías Markússon|Matthíasi Markússyni]] snikkara og konu hans [[Sólveig Pálsdóttir|Sólveigu Pálsdóttur]] ljósmóður.
| |
| Sólveig var send til ljósmæðranáms í Kaupmannahöfn og við heimkomuna var byggt fæðingarheimili við Landlyst með styrk frá danska ríkinu. Þetta kom til vegna landlægs sjúkdóms sem nefndist [[ginklofi]] (stífkrampi) og lagðist hann sérstaklega á ungabörn. Ginklofinn var skæðari í Eyjum en annars staðar hér á landi og ungbarnadauði var mikill.
| |
|
| |
| Sumarið 1847 kom danski læknirinn [[Peter Anton Schleisner]] til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.
| |
|
| |
| Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið. Eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu. Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu. Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar haldnar þar.
| |
|
| |
|
| |
| [[Flokkur:Hús]]
| |