„Árni Finnbogason (Hvammi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
: ''löngum vosi og veðradyn''
: ''löngum vosi og veðradyn''
: ''vanan á ystu sviðum.''
: ''vanan á ystu sviðum.''
[[Óskar Kárason]] samdi einnig formannavísu um Árna:
:''Árni ungur djúpin dökk
:''drafnar lungum hleypti,
:''þó að drunga fyllan frökk,
:''faldi þungum steypti.


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950.
* ''Sjómannablaðið Víkingur.'' Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
* ''Sjómannablaðið Víkingur.'' Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1965. }}
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1965. }}

Útgáfa síðunnar 28. júlí 2006 kl. 09:17

Árni Finnbogason fæddist í Norðurgarði í Vestmannaeyjum þann 6. desember 1893 og lést 22. júní 1992. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir. Árni var kvæntur Guðbjörgu Aðalheiði Sigurðardóttur frá Brekkuhúsi. Hófu þau búskap í Bræðraborg og eignuðust níu börn. Guðbjörg Aðalheiður lést árið 1958. Síðari kona Árna var Erla Kristjánsdóttir.

Árni byrjaði ungur sjómennsku á Neptúnusi I. Árið 1916 hóf hann formennsku á Happasæl og ári síðar tók hann við Sillu og svo Helgu til ársloka 1924. Síðan var Árni með ýmsa báta til ársins 1939.

Árni var góður bjargveiðimaður og stundaði bjargsig og fuglaveiði í tugi ára.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Árna:

Ekki hræðir Árna á Vin
ölduslark á miðum,
löngum vosi og veðradyn
vanan á ystu sviðum.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Árna:

Árni ungur djúpin dökk
drafnar lungum hleypti,
þó að drunga fyllan frökk,
faldi þungum steypti.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.