„Guðmundur Vigfússon (Holti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Smáleiðr.)
Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:
:''hleður úr græði glæsta Von
:''hleður úr græði glæsta Von
:''garpur miðasækinn.
:''garpur miðasækinn.
[[Óskar Kárason]] samdi einnig formannavísu um Guðmund:
:''Sjafnar heiðar siglir Von,
:''sær þá reiður hvæsir,
:''Gvendur veiðinn Vigfússon
:''valinn skeiðar ræsir.
{{Heimildir|
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950.
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]

Útgáfa síðunnar 28. júlí 2006 kl. 09:09

Guðmundur Vigfússon fæddist 10. febrúar 1906 og lést 6. október 1997. Foreldrar hans voru hjónin Guðleif Guðmundsdóttir frá Vesturhúsum í Vestmannaeyjum og Vigfús Jónsson í Túni í Vestmannaeyjum. Guðmundur ólst upp í Holti. Guðmundur var kvæntur Stefaníu Guðrúnu Einarsdóttur. Þau eignuðust tvö börn, þau Vigfús Sverri og Erlu. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum 1957 og bjó lengst af í Hafnarfirði, þar af á Hrafnistu í Hafnarfirði frá 1978.

Guðmundur tók vélstjóra- og skipstjórapróf 18 ára gamall og árið 1946 „öldunginn" í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Guðmundur var formaður á Voninni VE 113. Árið 1981 var Guðmundi afhent heiðursskjal Sjómannadagsráðs í Vestmannaeyjum með þökk fyrir gifturík störf í þágu sjómannastéttarinnar og byggðarlagsins.

Loftur Guðmundsson samdi formannavísu um Guðmund:

Að veiðum Guðmund Vigfússon
virðar telja frækinn,
hleður úr græði glæsta Von
garpur miðasækinn.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Guðmund:

Sjafnar heiðar siglir Von,
sær þá reiður hvæsir,
Gvendur veiðinn Vigfússon
valinn skeiðar ræsir.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.