„Ásgarður (félagsheimili)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
''Sjá [[Ásgarður|aðgreiningarsíðuna]] fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „'''Ásgarður'''“'' | |||
---- | |||
Húsið '''Ásgarður''' stendur við [[Heimagata|Heimagötu]] 35. Neðri hæðin er nú félagsheimili [[Sjálfstæðisflokkurinn|sjálfstæðismanna]] en nafnið mun ekki hafa komið á húsið fyrr en þeir eignuðust það. Á efri hæð hússins eru tvær íbúðir. | Húsið '''Ásgarður''' stendur við [[Heimagata|Heimagötu]] 35. Neðri hæðin er nú félagsheimili [[Sjálfstæðisflokkurinn|sjálfstæðismanna]] en nafnið mun ekki hafa komið á húsið fyrr en þeir eignuðust það. Á efri hæð hússins eru tvær íbúðir. | ||
Útgáfa síðunnar 21. júlí 2006 kl. 09:34
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Ásgarður“
Húsið Ásgarður stendur við Heimagötu 35. Neðri hæðin er nú félagsheimili sjálfstæðismanna en nafnið mun ekki hafa komið á húsið fyrr en þeir eignuðust það. Á efri hæð hússins eru tvær íbúðir.
Húsið, sem stendur á gatnamótum Heimagötu, Helgafellsbrautar, Austurvegar og Sólhlíðar, var byggt á sjöunda áratugnum og var í eigu Kaupfélags Vestmannaeyja. Þar var bæði rekin matvöruverslun og mjólkurbúð fram að gosi. Viðlagasjóður eignaðist húsið í gosinu, þar voru starfsmenn með aðstöðu fyrst eftir gos er unnu hjá Viðlagasjóði.
Knattspyrnufélagið Týr keypti húsið og leigði Bæjarfógetanum í Vestmannaeyjum hæðina, þar sem sjálfstæðismenn eru með aðstöðu sína. Bæjarfógetaembættið var í þessu húsnæði fram til ársins 1988 en þá keyptu sjálfstæðismenn það og þeir gáfu húsinu nafnið Ásgarður. ÍBV á enn kjallarann í húsinu og geymir þrettándadót sitt þar.