„Baldur Johnsen (læknir)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (flokkur fólk)
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
* [[Guðlaugur Gíslason]]: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
}}
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Læknar]]
[[Flokkur:Læknar]]

Útgáfa síðunnar 18. júlí 2006 kl. 15:38

Baldur Johnsen var héraðslæknir Vestmannaeyja frá 1951 til 1960. Baldur fæddist í Reykjavík þann 22. október 1910. Foreldrar hans eru Sigfús M. Johnsen, bæjarfógeti og Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir trésmíðameistara í Reykjavík.

Baldur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1930 og síðar cand. med. frá Háskóla Íslands árið 1936. Hann stundaði framhaldsnám erlendis bæði í Englandi, Danmörku og víðar. Baldur var skipaður héraðslæknir árið 1938 í Reykjafjarðar- og Ögurhéraði, síðan Ísafjarðarhéraði árið 1942 og gegndi því þar til hann var skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1951. Baldur var formaður Læknafélags Vestfjarða 1942 til 1943 og átti sæti í bæjarstjórn Ísafjarðar frá 1944 til 1950.

Hann gekkst fyrir stofnun Rotarýklúbbs Vestmannaeyja og var fyrsti forseti hans. Kona hans er Jóhanna Jóhannsdóttir söngkona og þau eiga saman fjögur börn.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.