Einnig stendur hús við [[Vestmannabraut]] 28 sem ber nafnið Þórshamar. [[Þorsteinn Johnson]] frá Jómsborg byggði húsið sem var kallað Gamla bíó áður fyrr í daglegu tali. Margs kyns starfsemi var í húsinu, svo sem kvikmyndasýningar og skemmtanir, ásamt verksmiðjurekstri, auk þess sem það var síðar meir notað sem geymsluskemma. Húsið hrundi í gosinu 1973 en var endurbyggt eftir gos og hýsir nú [[Hótel Þórshamar]] og veitingastaðinn Fjóluna.