„Sigurjón Ingvarsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Eftir Stokkseyrarferðirnar fór Sigurjón enn á sjóinn og var í áætlunarferðum milli Reykjavíkur og Eyja.  
Eftir Stokkseyrarferðirnar fór Sigurjón enn á sjóinn og var í áætlunarferðum milli Reykjavíkur og Eyja.  


Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Sigurjón:
: ''Við sjói og brim á sundi og vör''
: ''Sigurjón fangbrögð þreytir''
: ''Á Gísla Johnsen greiðir för''
: ''um græði, í borg og sveitir.''


{{Heimildir|
{{Heimildir|
Lína 12: Lína 18:
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Skipstjórar]]
[[Flokkur:Skipstjórar]]
[[Flokkur:Formenn]]

Útgáfa síðunnar 12. júlí 2006 kl. 14:02

Sigurjón Ingvarsson var fæddur 20. desember 1895 og lést 29. mars 1986, 90 ára gamall. Hann var fæddur og uppalinn að Klömbrum undir Austur-Eyjafjöllum. Hann fór í fyrsta sinn á sjó tólf ára gamall og vann ýmis sjóstörf á söndunum undir Eyjafjöllum næstu árin. Árið 1909 kemur hann fyrst á vertíð í Eyjum og er allar næstu vertíðir, undanskildar eru tvær þar sem hann var í Grindavík, árin 1916 og og 1917. Fyrst verður hann formaður árið 1923 þegar hann kaupir hlut í Þór. Svo er hann formaður á Sæbjörgu, Soffí, Gísla Johnseni og Ísleifi.

Sigurjón var brautryðjandi í samgöngumálum Vestmannaeyinga. Árið 1940 hóf hann Stokkseyrarferðir með Jóni á Látrum. Fengu þeir bátinn Skíðblaðni leigðan hjá Helga Benediktssyni. Fóru þeir eina til tvær ferðir í viku til Stokkseyrar með farþega og vörur. Fargjaldið var 4 krónur. Næsta sumar höfðu þeir bátinn Herstein á leigu. Þriðja sumarið höfðu þeir bátinn Gísla Johnsen á leigu og keyptu hann sumarið eftir. Þeir höfðu góðan aðbúnað fyrir farþega, t.a.m. settu þeir 44 kojur í lestina. Alls voru þeir félagar í 14 ár með Stokkseyrarferðirnar og fluttu í þeim 730 ferðum sem þeir fóru 23.000 farþega.

Eftir Stokkseyrarferðirnar fór Sigurjón enn á sjóinn og var í áætlunarferðum milli Reykjavíkur og Eyja.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Sigurjón:

Við sjói og brim á sundi og vör
Sigurjón fangbrögð þreytir
Á Gísla Johnsen greiðir för
um græði, í borg og sveitir.

Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Snemma beygist krókurinn. Sjómannadagsblaðið 1961. 10. árg.