„Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Magnús Guðmundsson fæddist 27. júní 1872 að [[Vesturhús|Vesturhúsum]] og lést 24. apríl 1955. Magnús var bóndi og formaður. Foreldrar hans voru [[Guðmundur Þórarinsson|Guðmundur bóndi Þórarinsson]] á [[Vesturhús]]um og [[Guðrún Erlendsdóttir]]. Magnús giftist Jórunni [[Hannes Jónsson|Hannesdóttur hafnsögumanns Jónssonar]]. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Vesturhúsum í Eyjum. Jórunn lést 24. janúar 1962. | Magnús Guðmundsson fæddist 27. júní 1872 að [[Vesturhús|Vesturhúsum]] og lést 24. apríl 1955. Magnús var bóndi og formaður. Foreldrar hans voru [[Guðmundur Þórarinsson|Guðmundur bóndi Þórarinsson]] á [[Vesturhús]]um og [[Guðrún Erlendsdóttir]]. Magnús giftist Jórunni [[Hannes Jónsson|Hannesdóttur hafnsögumanns Jónssonar]]. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Vesturhúsum í Eyjum. Jórunn lést 24. janúar 1962. | ||
Útgáfa síðunnar 6. júlí 2006 kl. 10:22
Magnús Guðmundsson fæddist 27. júní 1872 að Vesturhúsum og lést 24. apríl 1955. Magnús var bóndi og formaður. Foreldrar hans voru Guðmundur bóndi Þórarinsson á Vesturhúsum og Guðrún Erlendsdóttir. Magnús giftist Jórunni Hannesdóttur hafnsögumanns Jónssonar. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Vesturhúsum í Eyjum. Jórunn lést 24. janúar 1962.
Magnús byrjaði að stunda sjóinn um fermingaraldur. Fljótlega varð hann formaður. Þar til vélbátarnir komu var hann lengi formaður á Ingólfi. Magnús var um áratugi með allra snjöllustu formönnum og fyrstur til að stunda veiðar við Vestmannaeyjar með þorskalínu árið 1898. Einnig byrjaði Magnús á því að leggja þorskanet í sjó við Eyjar. Hann var formaður á Hansínu frá 1906 til 1921. Hann smíðaði nýja Hansínu, Hansínu II, árið 1916. Magnús var aflakóngur 1908.
Heimildir
- Eyjólfur Gíslason. Hannes Lóðs. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1954.
- Jón Sigurðsson. Aflakóngar Vestmannaeyja 1906-1929. Sjómannadagsblaðið 1961. 10. árg.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Þorsteinn Víglundsson. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum. Blik. 23. árg 1962.