„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2004/ Minning látinna“: Munur á milli breytinga
Karibjarna2 (spjall | framlög) (Ný síða: '''MINNING LÁTINNA'''
<br< '''Andrés Hannesson
F. 1. júní 1924 - D. 20. október 2003'''
Andrés Hannesso...) |
Karibjarna2 (spjall | framlög) Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''MINNING LÁTINNA'''
<br | '''MINNING LÁTINNA'''

'''Andrés Hannesson
| '''Andrés Hannesson

F. 1. júní 1924 - D. 20. október 2003'''
| '''F. 1. júní 1924 - D. 20. október 2003'''

Andrés Hannesson, fæddur í Eyvakoti á Eyrarbakka 1. júní 1924, dáinn 20. október 2003 Foreldrar: Jóhanna Bernharðsdóttir, fædd að Keldnakoti í Stokkseyrarhreppi l.október 1896, dáin 27. september 1970 og Hannes Andrésson, fæddur á Skúmsstöðum á Eyrarbakka 22. september 1892, dáinn 1. mars 1972. Þau voru gefin saman af séra Gísla Skúlasyni hinn 1. nóvember 1919. Systkini Andrésar eru: Gunnlaug f. 17.9.1920, Guðrún Fanney f. 2. 3. 1922, Bernharður f. 6. 11. 1925, Jórunn Ásta f. 3. 4. 1928, Hannes f. 5. 11. 1930, Haraldur Ármann f. 1.1 1932, Svanlaug f. 20.4. 1933, d. 31.1 2003, og Garðar f. 18.2. 1935.
| Andrés Hannesson, fæddur í Eyvakoti á Eyrarbakka 1. júní 1924, dáinn 20. október 2003 Foreldrar: Jóhanna Bernharðsdóttir, fædd að Keldnakoti í Stokkseyrarhreppi l.október 1896, dáin 27. september 1970 og Hannes Andrésson, fæddur á Skúmsstöðum á Eyrarbakka 22. september 1892, dáinn 1. mars 1972. Þau voru gefin saman af séra Gísla Skúlasyni hinn 1. nóvember 1919. Systkini Andrésar eru: Gunnlaug f. 17.9.1920, Guðrún Fanney f. 2. 3. 1922, Bernharður f. 6. 11. 1925, Jórunn Ásta f. 3. 4. 1928, Hannes f. 5. 11. 1930, Haraldur Ármann f. 1.1 1932, Svanlaug f. 20.4. 1933, d. 31.1 2003, og Garðar f. 18.2. 1935.

Andrés hóf sjómennsku 14 ára frá Þorlákshöfn. Fór á vetrarvertíð til Vestmannaeyja 1942 og ílentist þar. Kvæntist Guðleifu Vigfúsdóttur frá Holti í Vestmannaeyjum 31. 12. 1947 en höfðu búið hjá Valgerði móður hennar frá vordögum 1944. Þau byggðu sér myndarlegt hús að Birkihlíð 3 í Eyjum og fluttu í það fyrir jólin 1947 og áttu heima þar til 1965 að þau flytja til Reykjavíkur. Synir þeirra eru: Vigfús Valur f. 20.2 1945 og Hannes f. 29. 11. 1946. Hannes fórst með vélbátnum Þráni 5. 11. 1968. Börn Vigfúsar Vals eru: Andrea Heidi, Hanna og Magnús Helgi. Andrés undi sér ekki í höfuðborgarglaumnum og byggðu þau sér einbýlishús að Setbergi 15 í Þorlákshöfn sem þau fluttu í 1971 og þar bjó hann til dauðadags. Meðan þau áttu heima í Reykjavík stundaði Andrés sjóinn frá Þorlákshöfn og eftir það. Hann hafði öðlast vélstjórnarréttindi árið 1945 og tók síðar svokallað pungapróf skipstjórnarmanna. Hann var einstakt snyrtimenni. Vélarrúmin hans þóttu bera af fyrir snyrtimennsku eins og annað sem hann kom nálægt. Í Eyjum var hann vélstjóri lengst af hjá góðum, aflasælum skipstjórum. Árið 1955 lét hann smíða fyrir sig, á Siglufirði, 6 tonna trillu. sem hét Valur VE 279, eins og aðrir bátar hans sem á eftir komu en þeir urðu 4. Á langri viðburðaríkri sjómannsævi lenti hann tvisvar í þeirri miklu lífsreynslu að bátar, sem hann var á, sukku skyndilega. Annar, Valur 29 tonn, var keyrður niður 10. mars 1965. Var það síðast báturinn hans. Hinn var Gautur AR í ágúst 1977. Mannbjörg varð í báðum þessum sjósköðum. Andrés var mjög aflasæll formaður þó vetrarvertíðin 1958 standi þar upp úr en þá fiskaði hann 699 tonn af slægðum fiski á 15 tonna bát og það á handfæri. Þegar hann kom í land eftir 46 ára sjómennsku, gerðist hann hafnarvörður og starfsmaður á hafnarvoginni í Landshöfninni í Þorlákshöfn og vann við það til loka starfsævinnar. Andrés var sæmdur heiðursmerki Sjómanna-agsráðs Þorlákshafnar á sjómannadaginn 1989. | Andrés hóf sjómennsku 14 ára frá Þorlákshöfn. Fór á vetrarvertíð til Vestmannaeyja 1942 og ílentist þar. Kvæntist Guðleifu Vigfúsdóttur frá Holti í Vestmannaeyjum 31. 12. 1947 en höfðu búið hjá Valgerði móður hennar frá vordögum 1944. Þau byggðu sér myndarlegt hús að Birkihlíð 3 í Eyjum og fluttu í það fyrir jólin 1947 og áttu heima þar til 1965 að þau flytja til Reykjavíkur. Synir þeirra eru: Vigfús Valur f. 20.2 1945 og Hannes f. 29. 11. 1946. Hannes fórst með vélbátnum Þráni 5. 11. 1968. Börn Vigfúsar Vals eru: Andrea Heidi, Hanna og Magnús Helgi. Andrés undi sér ekki í höfuðborgarglaumnum og byggðu þau sér einbýlishús að Setbergi 15 í Þorlákshöfn sem þau fluttu í 1971 og þar bjó hann til dauðadags. Meðan þau áttu heima í Reykjavík stundaði Andrés sjóinn frá Þorlákshöfn og eftir það. Hann hafði öðlast vélstjórnarréttindi árið 1945 og tók síðar svokallað pungapróf skipstjórnarmanna. Hann var einstakt snyrtimenni. Vélarrúmin hans þóttu bera af fyrir snyrtimennsku eins og annað sem hann kom nálægt. Í Eyjum var hann vélstjóri lengst af hjá góðum, aflasælum skipstjórum. Árið 1955 lét hann smíða fyrir sig, á Siglufirði, 6 tonna trillu. sem hét Valur VE 279, eins og aðrir bátar hans sem á eftir komu en þeir urðu 4. Á langri viðburðaríkri sjómannsævi lenti hann tvisvar í þeirri miklu lífsreynslu að bátar, sem hann var á, sukku skyndilega. Annar, Valur 29 tonn, var keyrður niður 10. mars 1965. Var það síðast báturinn hans. Hinn var Gautur AR í ágúst 1977. Mannbjörg varð í báðum þessum sjósköðum. Andrés var mjög aflasæll formaður þó vetrarvertíðin 1958 standi þar upp úr en þá fiskaði hann 699 tonn af slægðum fiski á 15 tonna bát og það á handfæri. Þegar hann kom í land eftir 46 ára sjómennsku, gerðist hann hafnarvörður og starfsmaður á hafnarvoginni í Landshöfninni í Þorlákshöfn og vann við það til loka starfsævinnar. Andrés var sæmdur heiðursmerki Sjómanna-agsráðs Þorlákshafnar á sjómannadaginn 1989. | ||
Lína 15: | Lína 15: | ||
::::::::::::::::::::'''Magnús Kristinsson'''
<br< | ::::::::::::::::::::'''Magnús Kristinsson'''
<br< | ||
'''Garðar Sigurðsson
| '''Garðar Sigurðsson

F. 20. nóv. 1933 - D. 19. mars 2004'''.
| '''F. 20. nóv. 1933 - D. 19. mars 2004'''.

Garðar Sigurðsson, stýrimaður, síðar alþingismaður, var fæddur í Reykjavík 20. nóv. 1933. Foreldrar hans voru Klara Tryggvadóttir og eiginmaður hennar, Sigurður Hjálmarsson bifreiðasmiður. Garðar fluttist barn að aldri með móður sinni til Vestmannaeyja og ólst upp með henni og síðari manni hennar, Hallgrími Júlíussyni skipstjóra, sem hann leit á og taldi föður sinn. Hallgrímur, sem var ættaður úr Bolungarvík, fórst í Helgaslysinu við Faxasker í ársbyrjun 1950 og má nærri geta hvílíkt áfall sá hörmulegi atburður hefur verið Garðari sem þá var uppi á landi fyrsta vetur sinn í menntaskóla.
| Garðar Sigurðsson, stýrimaður, síðar alþingismaður, var fæddur í Reykjavík 20. nóv. 1933. Foreldrar hans voru Klara Tryggvadóttir og eiginmaður hennar, Sigurður Hjálmarsson bifreiðasmiður. Garðar fluttist barn að aldri með móður sinni til Vestmannaeyja og ólst upp með henni og síðari manni hennar, Hallgrími Júlíussyni skipstjóra, sem hann leit á og taldi föður sinn. Hallgrímur, sem var ættaður úr Bolungarvík, fórst í Helgaslysinu við Faxasker í ársbyrjun 1950 og má nærri geta hvílíkt áfall sá hörmulegi atburður hefur verið Garðari sem þá var uppi á landi fyrsta vetur sinn í menntaskóla.

Garðari gekk vel við nám, var bráðskarpur og duglegur eins og fleiri systkini hans. Hann fór fyrst með félaga sínum og jafnaldra, Eyjólfi Pálssyni, í menntaskólann á Laugarvatni, en lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann innritaðist í verkfræði í Háskóla Íslands, en hætti eftir tvö ár, þá orðinn fjölskyldumaður. Fjárhagurinn var þröngur og Garðar fór til sjós. Hann kenndi svo við Gagnfræðaskólann á Neskaupstað 1957-1960 og eftir það við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1961-1962 og 1963-1971. Hann var settur skólastjóri hans veturinn 1969-1970 í leyfi Eyjólfs Pálssonar.
| Garðari gekk vel við nám, var bráðskarpur og duglegur eins og fleiri systkini hans. Hann fór fyrst með félaga sínum og jafnaldra, Eyjólfi Pálssyni, í menntaskólann á Laugarvatni, en lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann innritaðist í verkfræði í Háskóla Íslands, en hætti eftir tvö ár, þá orðinn fjölskyldumaður. Fjárhagurinn var þröngur og Garðar fór til sjós. Hann kenndi svo við Gagnfræðaskólann á Neskaupstað 1957-1960 og eftir það við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1961-1962 og 1963-1971. Hann var settur skólastjóri hans veturinn 1969-1970 í leyfi Eyjólfs Pálssonar.

Útgáfa síðunnar 28. febrúar 2017 kl. 12:22
Andrés Hannesson
F. 1. júní 1924 - D. 20. október 2003
Andrés Hannesson, fæddur í Eyvakoti á Eyrarbakka 1. júní 1924, dáinn 20. október 2003 Foreldrar: Jóhanna Bernharðsdóttir, fædd að Keldnakoti í Stokkseyrarhreppi l.október 1896, dáin 27. september 1970 og Hannes Andrésson, fæddur á Skúmsstöðum á Eyrarbakka 22. september 1892, dáinn 1. mars 1972. Þau voru gefin saman af séra Gísla Skúlasyni hinn 1. nóvember 1919. Systkini Andrésar eru: Gunnlaug f. 17.9.1920, Guðrún Fanney f. 2. 3. 1922, Bernharður f. 6. 11. 1925, Jórunn Ásta f. 3. 4. 1928, Hannes f. 5. 11. 1930, Haraldur Ármann f. 1.1 1932, Svanlaug f. 20.4. 1933, d. 31.1 2003, og Garðar f. 18.2. 1935.
Andrés hóf sjómennsku 14 ára frá Þorlákshöfn. Fór á vetrarvertíð til Vestmannaeyja 1942 og ílentist þar. Kvæntist Guðleifu Vigfúsdóttur frá Holti í Vestmannaeyjum 31. 12. 1947 en höfðu búið hjá Valgerði móður hennar frá vordögum 1944. Þau byggðu sér myndarlegt hús að Birkihlíð 3 í Eyjum og fluttu í það fyrir jólin 1947 og áttu heima þar til 1965 að þau flytja til Reykjavíkur. Synir þeirra eru: Vigfús Valur f. 20.2 1945 og Hannes f. 29. 11. 1946. Hannes fórst með vélbátnum Þráni 5. 11. 1968. Börn Vigfúsar Vals eru: Andrea Heidi, Hanna og Magnús Helgi. Andrés undi sér ekki í höfuðborgarglaumnum og byggðu þau sér einbýlishús að Setbergi 15 í Þorlákshöfn sem þau fluttu í 1971 og þar bjó hann til dauðadags. Meðan þau áttu heima í Reykjavík stundaði Andrés sjóinn frá Þorlákshöfn og eftir það. Hann hafði öðlast vélstjórnarréttindi árið 1945 og tók síðar svokallað pungapróf skipstjórnarmanna. Hann var einstakt snyrtimenni. Vélarrúmin hans þóttu bera af fyrir snyrtimennsku eins og annað sem hann kom nálægt. Í Eyjum var hann vélstjóri lengst af hjá góðum, aflasælum skipstjórum. Árið 1955 lét hann smíða fyrir sig, á Siglufirði, 6 tonna trillu. sem hét Valur VE 279, eins og aðrir bátar hans sem á eftir komu en þeir urðu 4. Á langri viðburðaríkri sjómannsævi lenti hann tvisvar í þeirri miklu lífsreynslu að bátar, sem hann var á, sukku skyndilega. Annar, Valur 29 tonn, var keyrður niður 10. mars 1965. Var það síðast báturinn hans. Hinn var Gautur AR í ágúst 1977. Mannbjörg varð í báðum þessum sjósköðum. Andrés var mjög aflasæll formaður þó vetrarvertíðin 1958 standi þar upp úr en þá fiskaði hann 699 tonn af slægðum fiski á 15 tonna bát og það á handfæri. Þegar hann kom í land eftir 46 ára sjómennsku, gerðist hann hafnarvörður og starfsmaður á hafnarvoginni í Landshöfninni í Þorlákshöfn og vann við það til loka starfsævinnar. Andrés var sæmdur heiðursmerki Sjómanna-agsráðs Þorlákshafnar á sjómannadaginn 1989.
- Haraldur Hannesson.
- Haraldur Hannesson.
Bergur Elías Guðjónsson, útgerðarmaður
F. 10. júní 1913 - D. 7. júní 2003.
Elli Bergur, eins og hann var alltaf kallaður, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 7. júní 2003 en hann fæddist í Vestmannaeyjum 10. júní 1913.
Foreldrar Ella voru Margrét Símonardóttir, f. 1891 d. 1920 og Guðjón P. Valdason, f. 1893 d. 1989. Seinni kona Guðjóns og fóstra Ella var Guðbjörg Þorsteinsdóttir, f. 1895 d. 1991. Alsystur hans voru Ragnhildur og Klara sem báðar eru látnar. Hálfsystkini hans eru Þorsteinn og Bergrós sem létust ung og Marteinn og Ósk sem lifa bróður sinn. Elli kvæntist 15. maí 1937 Guðrúnu Ágústsdóttur frá Hróarsholti í Flóa, f. 29.01.1916. Börn þeirra eru: 1. Ágúst f. 19.09.1937, kvæntur Stefaníu Guðmundsdóttur, f. 16.01.1941. Börn þeirra eru Bergur Elías og Sigurbjörg. 2. Margrét Klara, f. 13.08.1941, gift Birgi Símonarsyni, f. 16.09.1940 og þeirra börn eru Elva Björk. Jóhanna og Rúnar Þór. 3. Kristín, f. 08.12.1945, gift Kristmanni Karlssyni f. 06.06.1945 og heita börn þeirra Guðrún, Betsý og Elísa.
Elli Bergur hóf ungur sjómennsku með föður sínum á Skíðblani en vegna sjóveiki fór hann fljótt í land. Þegar Guðjón varð skipstjóri á Kap VE 272 hjá Kjartani Guðmundssyni útgerðarmanni og ljósmyndara, sá Elli Bergur um útgerðina. Aflinn var unninn í salt í Geirseyri sem Kjartan átti. Ásamt þeirri vinnu sá Elli Bergur um öll veiðarfæri og beitningu á línuvertíðinni. Árið 1951 keyptu þeir feðgar, Guðjón og Elli Bergur ásamt Magnúsi Bergssyni, bát og hús og Elli Bergur hélt áfram að sjá um verkun aflans og veiðarfærin. Árið 1955 fengu þeir félagar nýsmíðaða Kap VE 272, 52 tonn, frá Danmörku og sú gamla var seld. Þessa nýju Kap áttu þeir í 10 ár. Árið 1964 keyptu þeir 100 tonna stálbát, Halkion, sem fékk nafnið Kap II VE 4 og áttu hana til 1971. Þá hættu þeir feðgarnir útgerð nema óbeint í gegnum Ísfélagið. Eftir að Guðjón hætti skipstjórn 1961, tók Ágúst, sonur Ella Bergs, við af afa sínum og var hjá þeim þar til þeir hættu. Magnús Bergsson var einnig útgerðarmaður Bergs VE 44 ásamt Kristni Pálssyni skipstjóra, tengdasyni sínum. Saman byggðu þessar útgerðir nýja Geirseyri ofan við Básaskersbryggjuna, stórt og myndarlegt hús. Í nokkur ár sameinaðist útgerð þeirra félaga útgerð Tómasar Guðjónssonar í Höfn um verkun afla báta þeirra og var Elli Bergur verkstjórinn. Þegar nokkrar útgerðir, m.a. þessar tvær, eignuðust Ísfélagið árið 1957, varð Elli Bergur verkstjóri þar í saltfiskinum og hætti ekki fyrr en hann varð 76 ára.
Kynni mín af honum voru fyrst er ég, strákur, kom reglulega með föður mínum niður á Gömlu-Geirseyri þar sem Elli var við afskurð neta. Hann sá um afskurð af Kap og Berg á þessum árum ásamt því að beita og hafa eftirlit með beitningunni. Þar var fróðlegt spjall um sjóinn og einnig spurði hann frétta: „Hvernig gengur í Reykjavíkinni, heldur þú að þetta nám gagnist þér við að færa bókhaldið fyrir Kap Ve.“ Hjá honum var alltaf stutt í gamansemina og stríðnina og alltaf var talað tæpitungulaust um hlutina. Sem hluthafi í Ísfélaginu var hann alltaf útgerðarmaður. Elli var elsti hluthafi Ísfélagsins þegar hann lést en hann kom inn sem hluthafi og útgerðarmaður á Kap Ve auk þess sem hann var starfsmaður Ísfélagsins um árabil. Elli var mikil Ísfélagsmaður og fylgdist vel með því sem var að gerast í Ísfélaginu.
Elli Bergur var maður sem setti svip sinn á samfélagið og er sárt saknað.
Fjölskyldu Ella Bergs votta ég samúð við fráfall mikils sómamanns og vinar.
- Magnús Kristinsson
<br<
- Magnús Kristinsson
Garðar Sigurðsson
F. 20. nóv. 1933 - D. 19. mars 2004.
Garðar Sigurðsson, stýrimaður, síðar alþingismaður, var fæddur í Reykjavík 20. nóv. 1933. Foreldrar hans voru Klara Tryggvadóttir og eiginmaður hennar, Sigurður Hjálmarsson bifreiðasmiður. Garðar fluttist barn að aldri með móður sinni til Vestmannaeyja og ólst upp með henni og síðari manni hennar, Hallgrími Júlíussyni skipstjóra, sem hann leit á og taldi föður sinn. Hallgrímur, sem var ættaður úr Bolungarvík, fórst í Helgaslysinu við Faxasker í ársbyrjun 1950 og má nærri geta hvílíkt áfall sá hörmulegi atburður hefur verið Garðari sem þá var uppi á landi fyrsta vetur sinn í menntaskóla.
Garðari gekk vel við nám, var bráðskarpur og duglegur eins og fleiri systkini hans. Hann fór fyrst með félaga sínum og jafnaldra, Eyjólfi Pálssyni, í menntaskólann á Laugarvatni, en lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann innritaðist í verkfræði í Háskóla Íslands, en hætti eftir tvö ár, þá orðinn fjölskyldumaður. Fjárhagurinn var þröngur og Garðar fór til sjós. Hann kenndi svo við Gagnfræðaskólann á Neskaupstað 1957-1960 og eftir það við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1961-1962 og 1963-1971. Hann var settur skólastjóri hans veturinn 1969-1970 í leyfi Eyjólfs Pálssonar.
Garðar var ungur þegar hann fór fyrst til sjós. Það var á Helga með Hallgrími, sumarúthald og hann 14 eða 15 ára. Hann var öll sumur, meðan hann var í skóla, á sjó. Á Guðrúnu var hann 1950 með Óskari Eyjólfssyni sem sagði um Garðar að hann hefði verið „frískur og duglegur“. Tvö sumur var hann með Sigurbirni Sigfinnssyni („Bubba“, föðurbróður Bergþóru), 1951 á Veigu og 1952 á Hugrúnu. Hann var svo tvær vertíðir í Eyjum, 1961 og 1963, m.a. með Helga Bergvinssyni á Stíganda, og á ýmsum bátum yfir sumar eða í afleysingum, t.d. með Þórði Rafn á Jóni Stefánssyni, á Frá með Oskari Þórarinssyni, á Gullbergi með Guðjóni Pálssyni, Mars með Grétari Skaftasyni, Hringver og Kóp, Ófeigi, Vestmannaey o.fl. Meðan hann var í háskólanum fór hann í leyfum túra á togurum, m.a. oft á Karlsefni með Halldóri Ingimarssyni, líka á Keflvíkingi með Ásmundi Friðrikssyni. Öllum ber saman um að Garðar hafi verið harðduglegur sjómaður og góður vinnufélagi; vildi helst aldrei tala um pólitík úti á sjó! Ef stund var milli stríða þá spilaði hann (bridge) eða tefldi skák, stundum blindskák.
Garðar lauk stýrimannaprófi utan skóla í Reykjavík árið 1962 og var eftir það jafnan stýrimaður á þeim bátum sem hann var á.
Garðar varð ungur róttækur í skoðunum, harður sósíalisti. Hann hafði þó ekki bein afskipti af stjórnmálum fyrr en hann var kjörinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja árið 1966 fyrir Alþýðubandalagið með Sigurði Stefánssyni þegar meiri hluti sjálfstæðismanna féll eftir langt stjórnartímabil. Eftir fráfall Sigurðar árið eftir varð Garðar forustumaður Alþýðubandalagsins. Hann gat jafnan treyst á fylgi margra sjómanna og æskufólks sem hann hafði kennt, auk annarra sem að jafnaði studdu flokkinn. Þeim gekk vel, Garðari og Hafsteini Stefánssyni, í bæjarstjórnarkosningunum 1970 og urðu stærsti flokkurinn í meirihlutasamstarfi vinstri manna, en 1974 var hann á sameiginlegum lista með framsóknarmönnum; gekk þá verr og meirihlutasamstarfið slitnaði eftir árið.Mjög dró þá úr afskiptum Garðars af bæjarmálum á vettvangi bæjarstjórnar en hann sótti þó einstaka fundi eftir því sem við var komið út kjörtímabilið, til 1978. Alls sat hann 72 bæjarstjórnarfundi, og á árunum 1968-1978 sat hann 124 bæjarráðsfundi.
Við alþingiskosningarnar í júní 1971 var Garðar í 1. sæti á lista Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi og hlaut glæsilega kosningu þótt fyrri forustumaður Alþýðubandalagsins til margra ára, Karl Guðjónsson, væri í framboði fyrir Alþýðuflokkinn í þessum kosningum. Garðar sat samfellt á þingi 1971-1987. Hann naut álits á Alþingi fyrir þekkingu sína og reynslu af sjávarútvegsmálum og lét sig þau mestu skipta á þingi. Hann þótti öflugur talsmaður síns flokks en var þó sjálfstæður í málflutningi, snjall ræðumaður, og orðheppinn.
Erfiðasta viðfangsefni Garðars, meðan hann var alþingismaður og bæjarfulltrúi, hefur efalaust verði eldgosið 1973 og afleiðingar þess. Hann sat í fyrstu stjórn Viðlagasjóðs sem átti að bæta það tjón sem varð á eignum Vestmanneyinga og til að hefja uppbyggingu að nýju. Margt varð líka mótdrægt, átök innan flokks hans, bæði á þingi og í kjördæminu, erfiðleikar Útvegsbankans þar sem hann var í bankaráði og svo þrálát veikindi hans sjálfs í baki. Allt stuðlaði þetta að því að hann hætti þingmennsku 1987. Hann fór þá á ný á sjó, var hjá veiðieftirliti sjávarútvegsráðuneytisins, en fór í land eftir þrjú ár og varð síðar starfsmaður Landsbanka Íslands, við birgðaeftirlit. Þar vann hann þar til hann lét af störfum sökum heilsubrests, aðeins sextugur að aldri. Sjúkdómur hans var sérstaklega þungbær, lamaði hægt og sígandi líkamlega og sálarlega krafta hans uns hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík 19. mars sl.
Garðar eignaðist tvö börn með fyrri konu sinni. Um 1960 kynntist hann Bergþóru Óskarsdóttur á Neskaupstað. Þau giftu sig 1962 og eignuðust fjórar dætur. Bergþóra á ættir að rekja til Eyja. Faðir hennar var Óskar Sigfinnsson, harðduglegur, heppinn og fiskinn sjómaður, en hann var fæddur í Eyjum, sonur Júlíu í Dvergasteini og fyrri manns hennar sem fórst ungur með mótorbátnum Víkingi. Óskar fór þá austur á land í fóstur. Garðar og Bergþóra bjuggu í Eyjum þangað til hann var kjörinn á þing, fyrst á Faxastíg 33, í sambýli við móður hans, en þau byggðu sér svo hús við Hrauntún 3 sem Garðar teiknaði sjálfur. Bergþóra reyndist Garðari frábærlega vel í langvinnum veikindum hans síðustu ár.
Það var alltaf Iíf og fjör í kringum Garðar Sigurðsson meðan hann hélt heilsu. Hann var spaugsamur, mikil eftirherma og æringi. Hann gat verið nokkuð óvæginn við pólitíska andstæðinga sína í ræðu og riti en þeim ber saman um að hann hafi verið drengur góður þegar á reyndi, réttsýnn og heiðarlegur.
Við, sem yngri erum, munum Garðar fyrst og fremst sem kennara, góðan kennara, hressilegan og skemmtilegan, hjálpsaman, en hann var ekkert að vanda okkur kveðjurnar þegar þurfti að siða okkur til. Við bárum mikla virðingu fyrir honum, gáfum hans, snerpu og víðtækum fróðleik. Hann var glæsilegur á velli, friður og hraustur, a.m.k. var hann hraustlegur að sjá. Við tókum marga snerruna í tímum um heimsmálin og mál heimabyggðarinnar. Ekki var skafið utan af hlutunum en allt var það í góðu og er ákaflega skemmtilegt í minningunni.
- Helgi Bernódusson.
Hannes Tómasson F. 17. júní 1913 - D. 14. október 2003 Hannes Guðjón Tómasson fæddist á Miðhúsum í Vestmannaeyjum 17. júní 1913 en var ætíð kennd-ur við Höfn. Hann lést á Elliheimilinu Grund 14. október 2003. Foreldrar hans voru Tómas Maríus Guðjónsson f. 13. 1. 1887, d. 14.6. 1958, útgerðar-maður, og kona hans Hjörtrós Hannesdóttir frá Miðhúsurnf. 20.2. 1888, d. 26.3 1926. Seinni kona Tómasar var Sigríður Magnúsdóttir f. 4. 10. 1899, d. 18.9. 1968. Albræður Hannesar eru Martin f. 17. 6. 1915, d. 1. 1. 1976 og Jóhannes f. 13. 3. 1921. Hálfsystkini Hannesar eru Guðjón f. 29. 9. 1925, d. 2. 12. 1977, Magnea Rósa, f. 20. 9. 1928, Gerður Erla f. 21. 2. 1933 og Bragi f. 4. 3. 1939, d. 2. 8. 2002. H. 31. ágúst 1944 kvæntist Hannes Kristínu Jónsdóttur f. 3. aprfl. 1919, frá Hraungerði á Hellissandi. Hún lést á Landspítalanum víð Hringbraut 14. júni 2002. Foreldrar hennar voru Jón Valdimar Jóhannesson sjómaður f. 21.9. 1873, d. 15.6. 1959 og Hildur Sigurðardóttir f. 14. 4. 1895, d. 24. 2. 1962, bæði frá Hellissandi. Hannes og Kristín eignuðust 2 syni 1) Sverrir skipstjóri f. 13. 8. 1944, starfar nú sem flutningastjóri hjá Samskipum, kvæntur Helgu Vallý Björgvinsdóttur f. 20. 9. 1945 og eiga þau 2 börn Hannes verk-fræðing og Sigurlaugu flugfreyju, maki hennar er Halldór Hafsteinsson viðskiptafræðingur, 2) Tómas vinnur hjá Þrótti.
Sjómennskan var Hannesi í blóð borin, móðurafi hans var Hannes lóðs í Vestmannaeyjum. Var Hannes fyrst í siglingum á norsku skipi, Bisp, frá Haugasundi í 3 ár, þar til síðari heimstyrjöldin braust út. Þá fór hann í Stýrimannaskólann í Reykjavfk. Að því loknu varð hann stýrimaður á Kötlu. Einnig leysti hann af á Sæfellinu í Vestmannaeyjum og á Vatnajökli. Lengst af starf-aði Hannes sem stýrimaður og síðar skipstjóri á skipum Sambandsins. Árið 1962 kom Hannes í land og fór að vinna hjá Skeljungi við að lesta og losa olíuskip. Vann hann þar síðan við hin ýmsu störf .þar til hann hætti árið 1999, 86 ára. Þetta allt varstu vinur búinn að afreka þegar okkar kynni hófust. Langar mig að bæta fáeinum línum við þennan formála Hannes minn. Hér kveð ég kæran vin til margra ára. Það var kvöld, síminn hringdi, Eddi Malla var á línunni og tilkynnti að Hannes vinur minn hefði fengið heilablóðfall þá um daginn og útlitið ekki gott. Tveimur tímum síðar var hringt, það var Eddi að tilkynna mér lát vinar míns. Þarna var mínum rétt lýst. Málið klárað. Það var nú svo, að ég beið eftir símtali þetta kvöld. Beið eftir andlátsfregn af föður mínum blessuðum, sem kom klukkan 4 um nóttina. Það að þú hefðir kvatt var einhvern veginn ekki inni í myndinni. Talaði við þig nokkrum dögum áður og þú varst hress og ánægður með Eyjaferðina. Talað var um að hittast um næstu mánaðamót. Eg yrði þá á ferðinni og þú hafðir orð á því að það væri enn til wisky frá níræðisafmælinu. Því miður verður ekki af þessu spjalli, það bíður betri tíma. Við hittumst fyrst á aðalfundi Isfélags Vestmannaeyja, þú hluthafi, ég skipstjóri á Bergey, árið 1984. Boðið var upp á mat og drykk, og lentum við hvor á móti öðrum við langborð. Fjörið var svo mikið hjá okkur að hinn endinn var allur kominn á okkar enda eins og þú orðaðir það. Þá ákváðum við að þú kæmir með okkur í næstu veiðiferð og þa hófst vinátta sem stóð fram ú síðasta dag. Það leið ekki