„Ásgarður“: Munur á milli breytinga
(Fært til betri vegar, settir inn tenglar) |
(Teikning) |
||
Lína 2: | Lína 2: | ||
===Ásgarður við Heimagötu=== | ===Ásgarður við Heimagötu=== | ||
[[Mynd:Asgardur_heimagata.jpg|thumb|300px|Ásgarður við Heimagötu.]] | |||
Húsið '''Ásgarður''' var byggt á árunum 1902-3 af [[Árni Filippusson|Árna Filippussyni]] og stóð við [[Heimagata|Heimagötu]] 29. Húsið fór undir hraun árið 1973. | Húsið '''Ásgarður''' var byggt á árunum 1902-3 af [[Árni Filippusson|Árna Filippussyni]] og stóð við [[Heimagata|Heimagötu]] 29. Húsið fór undir hraun árið 1973. | ||
Útgáfa síðunnar 1. júní 2006 kl. 16:25
Þrjú hús hafa verið nefnd Ásgarður.
Ásgarður við Heimagötu
Húsið Ásgarður var byggt á árunum 1902-3 af Árna Filippussyni og stóð við Heimagötu 29. Húsið fór undir hraun árið 1973.
Ásgarður við Boðaslóð
Húsið Ásgarður stendur við Boðaslóð 5. Það var byggt árið 1912 en skemmdist mikið í gosinu og var endurbyggt eftir það.
Ásgarður félagsheimili
Húsið Ásgarður stendur við Heimagötu 35. Neðri hæðin er nú félagsheimili sjálfstæðismanna en nafnið mun ekki hafa komið á húsið fyrr en þeir eignuðust það. Á efri hæð hússins eru tvær íbúðir.
Húsið, sem stendur á gatnamótum Heimagötu, Helgafellsbrautar, Austurvegar og Sólhlíðar, var byggt á sjöunda áratugnum og var í eigu Kaupfélags Vestmannaeyja. Þar var bæði rekin matvöruverslun og mjólkurbúð fram að gosi. Viðlagasjóður eignaðist húsið í gosinu, þar voru starfsmenn með aðstöðu fyrst eftir gos er unnu hjá Viðlagasjóði.
Knattspyrnufélagið Týr keypti húsið og leigði Bæjarfógetanum í Vestmannaeyjum hæðina, þar sem sjálfstæðismenn eru með aðstöðu sína. Bæjarfógetaembættið var í þessu húsnæði fram til ársins 1988 en þá keyptu sjálfstæðismenn það og þeir gáfu húsinu nafnið Ásgarður. ÍBV á enn kjallarann í húsinu og geymir þrettándadót sitt þar.