„Heimaklettur“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
{{Fjöll}} | |||
[[Mynd:Heimaklettur sv spm.jpg|thumb|left|250px|Heimaklettur séður frá suð-vestri.]] | |||
'''Heimaklettur''' er hæsta fjall Vestmannaeyja, en það stendur á [[Heimaey]] og er 283m á hæð yfir sjávarmáli. Kletturinn er [[jarðfræði|móbergsstapi]] sem varð til við gos undir jökli seint á síðustu ísöld. Hann stendur sæbrattur upp úr sjónum, en efst eru grasi vaxnar brekkur á bólstrabergstoppi þar sem að fé er haft á beit. | |||
Fjallgöngur hafa löngum verið stundaðar í Heimakletti. Oft hefur uppgangan verið erfið og hættuleg vegna brattra hlíða og bergs. En bót varð á því í kringum árið 2000. Þá var smíðaður stigi og settur upp þar sem erfiðasti hjallinn er. Ekki er það þó þrautalaust að komast á topp Heimakletts og þarf óvant fólk helst að vera í fylgd með einhverjum sem kann á aðstæður. Gangan upp á klettinn er mikið gaman og reynir vel á. Útsýnið er fagurt og frábært að sjá bæinn og eyjarnar frá þessum sjónarhóli. Á björtum degi sést vel upp á meginlandið, Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull blasir við og langt út á Suðurlandsundirlendið. | |||
[[Mynd:Jsþ 0632.jpg|thumb|250px|Heimaklettur]] | |||
Þegar sjávarfjöllin leyfa er hægt að fara bæði framan og bakvið við Heimaklett. Aðstæður þurfa að vera góðar til að fara á bakvið Heimaklett en þá er upplifunin ennþá meiri. Fegurðin og háir klettarnir heilla hvern þann sem sér. | |||
Systraklettar Heimakletts heita [[Miðklettur]] og [[Ystiklettur]]. Ekki er ráðlagt fólki að fara úr Heimakletti út í næstu kletta en það er þó hægt fyrir heimavana menn. Miðklettur og Ystiklettur eru heldur minni en Heimaklettur en saman mynda þeir órjúfanlega mynd sem hefur fest sig í hugum svo margra Eyjamanna og utanaðkomandi fólks. Í Ystakletti er stunduð [[lundi|lundaveiði]] á sumrin og er veiðikofi í honum | |||
== Örnefni == | |||
'''Dufþekja''' [[Mynd:Duftek2.JPG|thumb|right|300px|Dufþekja í Heimkletti, séð af sjó aftan á Heimaklett]]norðan í Heimakletti er mikið [[fýll|fýlapláss]] og þar var áður mikil hvanna- og rótatekja. Hún er ákaflega flá og brött og var mönnum þar hrapgjarnt. Það var trú manna að 20 manns ættu að farast úr henni áður en yfir lyki eða jafnmargir og í Jökulsá á Sólheimasandi en þær áttu að „kallast á“ um manntapa. Fyrsta dauðsfallið í Dufþekju er sagt vera þegar að þræll Hjörleifs að nafni Dufþakur hrapaði þar niður á flótta undan Ingólfi Arnarsyni. | |||
Í Kleifunum í Heimakletti er svokallaður [[Papakrossinn|Papakross]]. Hann er talinn sanna veru Papa í Vestmannaeyjum fyrir landnám. | |||
'''Hörgaeyri''' er sandbanki sunnan í Heimakletti sem stendur út frá '''Stóru-löngu'''. Þegar að Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason komu með [[Kirkjumál|kristna trú]] til Íslands frá Noregi árið 1000 höfðu þeir með sér efnivið og fyrirmæli frá Ólafi konungi Tryggvasyni um að reisa skyldi kirkju á fyrsta stað sem að þeir „''skytu bryggjum á land''“, en í Kristnisögu kemur fram að þeir hafi haft viðkomu í Dyrhólaey á leið sinni. Kirkjan var reist á Hörgaeyri, þar sem blót og hörgar voru stundaðar áður. Kirkjan var kölluð [[Stafkirkjan]], og var tileinkuð heilögum Klementi, verndardýrlingi sæfara og sjósóknara. | |||
:„''ok var lutað um hvárum megin vágsins standa skyldi, ok hlauzt fyrir norðan, þar váru áðr blót ok hörgar''“. | |||
<div class="floatright" style="background: #e0e0e0; border: 1px solid #303030; padding: 7px;"> | |||
<big>'''Heimaklettur'''</big> | |||
:''Heimaklettur, hátt þú rís'' | |||
:''hrauns með gretta dranga.'' | |||
:''Högg þér réttir hrannadís,'' | |||
:''hörð og þétt á vanga.'' | |||
:''Þú mátt brjóta storma stál'' | |||
:''straumum móti gnafinn,'' | |||
:''spyrna fótum Atlants-ál,'' | |||
:''ölduróti kafinn.'' | |||
:''Margra alda rún við rún'' | |||
:''ristur gjaldamegin.'' | |||
:''Upp í kaldan beitir brún,'' | |||
:''bárufaldi þveginn.'' | |||
:''Þegar hrína hret á kinn,'' | |||
:''hreggið hvín á skalla.'' | |||
:''Norðri krýnir konunginn'' | |||
:''köldu líni mjalla'' | |||
''[...]'' | |||
- Sveinbjörn Á Benónýsson | |||
</div> | |||
'''Hákollar''' eru hæsti tindur Vestmannaeyja, í 283 metra hæð yfir sjávarmáli. Hann er nyrst í Heimakletti, austan Dufþekju. Þar er mikil [[lundi|lundaveiði]] stunduð. Útsýni af Háukollum er stórkostlegt í góðu skyggni. Eyjafjallajökull, Hekla, Þríhyrningur og hinar blómlegu sveitir Landeyja, Fljótshlíðar og Eyjafjalla blasa við sjónum. Dyrhólaey má sjá í austri og í norðurátt má sjá Langjökul í góðu skyggni. Ingólfsfjall sést vel, og í vestri mótar fyrir Reykjanesfjallgarðinum svo og Eldey við sjóndeildarhring. | |||
== Upplýsingin == | |||
Árið 2003, í tilefni af 30 ára [[goslokahátíðin|goslokaafmælinu]] var byrjað að lýsa upp Heimaklett í skammdeginu með sterkum ljóskösturum. [[Friðbjörn Valtýsson]] stóð fyrir þessari uppljómun klettarins, en mörg fyrirtæki og margir einstaklingar komu að verkefninu. Í framhaldi af lýsingunni tók áhugahópur sig saman og fengu meira fjármagn og fleiri ljóskastara, og var þá byrjað að lýsa upp '''Neðri Kleifar''' og upp í '''Hettu'''. | |||
[[Mynd:Heimaklettur sed fra klifi.jpg|thumb|left|300px|Heimaklettur séður ofan af Klifinu.]] | |||
----- | |||
'''Heimildir''' | |||
<small> | |||
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982. | |||
* ''Gamalt og Nýtt, I. bindi'', Einar Sigurðsson ritstjóri; Prentsmiðjan Eyrún, Vestmannaeyjum 1949. ISBN 0-0003-055917 | |||
* ''Fréttir'', 30/04/2004, „Fleiri ljósum beint að Heimakletti í kvöld“. [http://eyjafrettir.is/default.asp?View=Article&ID=4419] | |||
* ''Landakirkja í Vestmannaeyjum'', Helgi Bernódusson og Ágúst Karlsson. [http://www.kirkjugardar.is/kgsi/bautast3/landakirkja.html] | |||
[[Flokkur:Örnefni]] |