„Þjóðhátíðin“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 20: | Lína 20: | ||
Síðar um kvöld voru kaffiveitingar og sódavatn á boðstólum í tjöldunum, en áfengi stóð ekki til boða. Frá þeirri Þjóðhátíð hefur hún verið haldin nánast óslitið. | Síðar um kvöld voru kaffiveitingar og sódavatn á boðstólum í tjöldunum, en áfengi stóð ekki til boða. Frá þeirri Þjóðhátíð hefur hún verið haldin nánast óslitið. | ||
==== Tréspíra-þjóðhátíðin 1943 ==== | |||
"1943- Mánudagur 10. ágúst rann upp með glaða sólskini og blíðasta veðri. Allt virtist leika í lyndi. Þjóðhátíðin afstaðin með skaplegheitum, nema hvað stormur á föstudagskvöldið, eyðilagði tjald-bústaðina í Dalnum. Kl. 3 mánudag fréttist að Daníel Loftsson væri dáinn, og það snögglega. – Litlu síðar kvisaðist að ekki mundi allt vera með felldu um dauða hans, en fór þó ekki hátt. – Kl. 4 fréttist lát Þorláks Sverrissonar, hafði hann fundist örendur í búð sinni Söluturninum. – Fóru menn þá að bera sér í munn að um áfengiseitrun væri að ræða, en þó voru um það getgátur einar. – Seinna um daginn fréttist að tveir menn höfðu verið fluttir á spítalann, veikir af áfengiseitrun. Það voru þeir Jón Gestsson og Guðmundur Guðmundsson.- | |||
Þriðjudagsmorguninn fréttist lát þeirra beggja Jóns og Guðmundar, höfðu báðir dáið þá um nóttina. – Þá fóru að berast út ægifregnir um marga sem sjúkir væru orðnir og að menn væru fluttir hvaðanæfa úr bænum á sjúkrahúsið. – Um kl. 11 fréttist lát Inga Sveinbjörnssonar, - kl. 1 lát Sveinjóns Ingvarssonar, - kl. 2 lát Þórarins Bernótussonar, - kl. 3 lát Árnýjar Guðjónsdóttur.- Þá voru komnir á sjúkrahúsið veikir Jónas Sigurðsson, Andrés Gestsson, Ólafur Davíðsson, og var þeim tveim síðast nefndu vart hugað líf. – Fleiri voru fluttir á sjúkrahúsið þann sama dag, en þeir voru ekki mjög veikir. | |||
Fleiri dauðsföll fréttust ekki á þriðjudag, en miðvikudagsnótt andaðist Ólafur Davíðsson, og var hann sá síðasti sem dó af eitruninni. | |||
Út um bæinn láu menn víðsvegar, sem ýmist ekki vildu láta leggja sig á sjúkrahúsið, enda ekki mjög hættulega veikir." | |||
Þessa frásögn er skrifuð af Kristjönu Óladóttur, Skólavegi 22, Vestmannaeyjum. Frumritið sem er handskrifað var afhent á Skjalasafn Vestmannaeyja í september 2004. | |||
=== Eftir gos === | === Eftir gos === |