„Brynjólfur Einarsson (skipasmiður)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 65: | Lína 65: | ||
*''Sigurgeir Jónsson.'' Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. | *''Sigurgeir Jónsson.'' Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Fólk]] |
Útgáfa síðunnar 13. júní 2006 kl. 09:51
Brynjólfur Einarsson, bátasmiður, var fæddur á Brekku í Lóni árið 1903. Hann lést 93 ára að aldri árið 1996. Brynjólfur orti mikið af vísum og birtum við hér smá sýnishorn.
Þessa vísu orti Brynjólfur vegna mengaðs vatns í Vestmannaeyjum af völdum gossins í Surtsey:
- Breyti um veður þá veit ég þú sérð
- í vatnsmálum okkar hvað skeður.
- Hér verður allsherjar gosdrykkjagerð
- gang'ann í útsynnings veður.
Þá samdi Brynjólfur formannavísu um Einar Svein Jóhannesson, skipstjóra:
- Einn sem hér af öðrum ber
- aflamaður mikill,
- oft á sjó í illu fer
- Einar Sveinn Jóhannesson.
Hér kemur afmælisvísa sem bátasmiðurinn hagyrti setti saman:
- Óprýða ljótir lestir
- lífsferil þessa manns
- enda formæla flestir
- fæðingardegi hans.
---
- Fjandi fannst mér það skrítið
- að fá henni svona breytt.
- Hún færðist úr lagi lítið
- en lagaðist ekki neitt.
---
- Eyverjar flestir eru nú
- uppteknir þorsk að skera.
- Þó er eindregin þeirra trú
- að þetta sé heilög vera.
---
- Kristján féll úr fræðslunefnd
- flestum þótti lítið tap.
- Ætli það sé ekki hefnd
- á hann fyrir bulluskap
Brynjólfur var skipasmiður og vann í slippnum. Einhverju sinni urðu heitar umræður á þeim vinnustað um þá óráðvendni sumra manna að stela fýlseggjum sem jarðabændur ættu tilkall til. Sá er mest kvartaði yfir þessum þjófnaði hafði lent í því fyrir skömmu að stela lögreglubílnum, ölvaður. Þegar hann hafði lokið reiðilestri sínum um eggjaþjófana, sagði Brynjólfur af sínu kunna hæglæti:
- Hugar mér vekur víl
- að verða að umgangast skríl.
- Einn stelur eggjum og fýl,
- annar fógetans bíl.
Hér yrkir Brynjólfur síðan um vísur sínar:
- Um vísur mínar helst er þetta að hafa í minni
- þær áttu við á einum stað
- og einu sinni.
Heimildir
- Dagblaðið Tíminn 8. desember 1963.
- Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.
- Sigurgeir Jónsson. Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.