„Brynjólfur Einarsson (skipasmiður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Bætti við texta)
Lína 2: Lína 2:




Þessa vísu orti Brynjólfur vegna megnaðs vatns í Vestmannaeyjum af völdum gossins í [[Surtsey]]:
Þessa vísu orti Brynjólfur vegna mengaðs vatns í Vestmannaeyjum af völdum gossins í [[Surtsey]]:


:''Breyti um veður þá veit ég þú sérð''
:''Breyti um veður þá veit ég þú sérð''
Lína 43: Lína 43:
:''Ætli það sé ekki hefnd''
:''Ætli það sé ekki hefnd''
:''á hann fyrir bulluskap''  
:''á hann fyrir bulluskap''  
Brynjólfur var skipasmiður og vann í slippnum. Einhverju sinni urðu heitar umræður á þeim vinnustað um þá óráðvendni sumra manna að stela fýlseggjum sem jarðabændur ættu tilkall til. Sá er mest kvartaði yfir þessum þjófnaði hafði lent í því fyrir skömmu að stela lögreglubílnum, ölvaður. Þegar hann hafði lokið reiðilestri sínum um eggjaþjófana, sagði Brynjólfur af sínu kunna hæglæti:
:''Hugar mér vekur víl''
:''að verða að umgangast skríl.''
:''Einn stelur eggjum og fýl,''
:''annar fógetans bíl.''




Lína 55: Lína 61:
*Dagblaðið Tíminn 8. desember 1963.
*Dagblaðið Tíminn 8. desember 1963.
*Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.
*Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.
*''Sigurgeir Jónson.'' Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
}}
}}

Útgáfa síðunnar 14. mars 2006 kl. 23:30

Brynjólfur Einarsson, bátasmiður, var fæddur á Brekku í Lóni árið 1903. Hann lést 93 ára að aldri árið 1996. Brynjólfur orti mikið af vísum og birtum við hér smá sýnishorn.


Þessa vísu orti Brynjólfur vegna mengaðs vatns í Vestmannaeyjum af völdum gossins í Surtsey:

Breyti um veður þá veit ég þú sérð
í vatnsmálum okkar hvað skeður.
Hér verður allsherjar gosdrykkjagerð
gang'ann í útsynnings veður.


Þá samdi Brynjólfur formannavísu um Einar Svein Jóhannesson, skipstjóra:

Einn sem hér af öðrum ber
aflamaður mikill,
oft á sjó í illu fer
Einar Sveinn Jóhannesson.


Hér kemur afmælisvísa sem bátasmiðurinn hagyrti setti saman:

Óprýða ljótir lestir
lífsferil þessa manns
enda formæla flestir
fæðingardegi hans.


---

Fjandi fannst mér það skrítið
að fá henni svona breytt.
Hún færðist úr lagi lítið
en lagaðist ekki neitt.

---

Eyverjar flestir eru nú
uppteknir þorsk að skera.
Þó er eindregin þeirra trú
að þetta sé heilög vera.

---

Kristján féll úr fræðslunefnd
flestum þótti lítið tap.
Ætli það sé ekki hefnd
á hann fyrir bulluskap

Brynjólfur var skipasmiður og vann í slippnum. Einhverju sinni urðu heitar umræður á þeim vinnustað um þá óráðvendni sumra manna að stela fýlseggjum sem jarðabændur ættu tilkall til. Sá er mest kvartaði yfir þessum þjófnaði hafði lent í því fyrir skömmu að stela lögreglubílnum, ölvaður. Þegar hann hafði lokið reiðilestri sínum um eggjaþjófana, sagði Brynjólfur af sínu kunna hæglæti:

Hugar mér vekur víl
að verða að umgangast skríl.
Einn stelur eggjum og fýl,
annar fógetans bíl.


Hér yrkir Brynjólfur síðan um vísur sínar:

Um vísur mínar helst er þetta að hafa í minni
þær áttu við á einum stað
og einu sinni.



Heimildir

  • Dagblaðið Tíminn 8. desember 1963.
  • Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.
  • Sigurgeir Jónson. Nýjar sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.